Dagur Sigurðsson er þjálfari ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2016 20:31 Dagur Sigurðsson fagnar Evrópumeistaratitlinum. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson, þjálfari karlalandsliðs Þjóðverja í handbolta, var í kvöld kosinn þjálfari ársins af Samtökum íþróttafréttamanna en kjörið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Dagur hafði betur en þeir Guðmundur Guðmundsson og Heimir Hallgrímsson sem voru einnig tilnefndir eftir að hafa lent í þremur efstu sætunum í kjöri meðlima Samtaka íþróttafréttamanna. Dagur Sigurðsson stýrði þýska landsliðinu í verðlaunasæti á báðum stórmótum ársins. Liðið varð Evrópumeistari í janúar og vann síðan bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í Ríó. Evrópumeistaratitill þýska landsliðsins á EM í Póllandi var mikið afrek ekki síst vegna þess að liðið missti út hvern lykilmanninn á fætur öðrum í aðdraganda mótsins. Degi tókst að vinna titilinn án hálfgerðu varaliði en eftir tap í fyrsta leik vann þýska liðið sjö síðustu leiki sína á mótinu þar á meðal sjö marka sigur á Spánverjum í úrslitaleik. Dagur varð í kjölfarið algjör þjóðhetja í Þýskalandi en þetta var fyrsti titill þýska handaboltalandsliðsins síðan að Heiner Brand gerði liðið að heimsmeisturum 2007 og jafnframt fyrsti Evrópumeistaratitill Þjóðverjar síðan 2004. Þýska liðið vann einnig til verðlaun á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst. Liðið vann sjö af níu leikjum sínum á leikunum þar á meðal sex marka sigur á Pólverjum í leiknum um þriðja sætið. Frakkar komu í veg fyrir að Dagur og lærisveinar hans léku um gullverðlaunin með því að vinna eins marks sigur í undanúrslitaleik liðanna. Dagur Sigurðsson er 43 ára gamall en hefur starfað sem þjálfari undanfarin sextán ár eða síðan að hann gerðist spilandi þjálfari japanska liðsins Wakunaga Hiroshima árið 2000. Dagur er nú á leið til Japans á ný en hann hætti með þýska landsliðsins eftir HM í Frakklandi í janúar og tekur við japanska landsliðinu.Þjálfari ársins Á fundi Samtaka íþróttafréttamanna þann 14. desember 2012 var samþykkt breyting á reglugerð fyrir kjör íþróttamanns ársins til að bæta við kosningu á þjálfara ársins. Gjaldgengir eru þjálfarar sem eru íslenskir ríkisborgarar sem þjálfa keppnislið í íþróttum. 2012 - Alfreð Gíslason 2013 - Alfreð Gíslason 2014 - Rúnar Páll Sigmundsson 2015 - Heimir Hallgrímsson 2016 - Dagur Sigurðsson
Fréttir ársins 2016 Handbolti Mest lesið Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Íslenski boltinn Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Enski boltinn Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Fótbolti Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Handbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Handbolti „Ég hafði trú á því að þær gætu gert þetta betur“ Fótbolti Fleiri fréttir Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Haukar halda sér í toppbaráttunni Janus Daði öflugur í súru tapi Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Elvar Örn öflugur og Melsungen áfram á toppnum Selfoss sá ekki til sólar á Hlíðarenda Íslendingalið Benfica og Gummersbach halda í vonina Þriðja landsliðskona liðsins orðin ófrísk Ýmir sneri aftur í góðum sigri Reynsluboltinn fann sér nýtt lið Gísli stórkostlegur í toppslagnum ÍBV vann Gróttu sem hefur beðið í 136 daga Óðinn Þór markahæstur að venju KA/Þór beint aftur upp í deild þeirra bestu Heimsmeistararnir gengu frá lærisveinum Guðjóns Vals „Vorum nokkurn veginn búnir að kortleggja þetta“ Uppgjörið: Haukar - Jeruzalem Ormoz 31-23 | Öruggt hjá Haukum gegn slöku slóvensku liði Valsmenn skoruðu 48 í Breiðholti Haukar töpuðu stórt í Tékklandi Framkonur stálheppnar að missa ekki sigurinn ÍR skellti í lás og fór upp fyrir Stjörnuna Sjá meira