Umfjöllun: Ísland - Danmörk 26-34 | Rassskelling í síðasta leiknum fyrir HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. janúar 2017 21:00 Arnór Þór Gunnarsson, hægri hornamaður Íslands. vísir/ernir
Ísland steinlá fyrir Danmörku, 26-34, í síðasta leiknum í Bygma bikarnum í handbolta í Árósum í kvöld. Þetta var síðasti leikur liðanna fyrir HM í Frakklandi sem hefst á miðvikudaginn. Ólympíumeistarar Dana höfðu mikla yfirburði í leiknum og sigur þeirra var aldrei í hættu. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar líta afar vel út og eru líklegir til afreka á HM. Íslenska liðið byrjaði leikinn illa, eins og alla leikina í Bygma bikarnum. Eftir 11 mínútna leik var staðan 4-9, Dönum í vil og eftir það var róðurinn þungur. Sóknarleikurinn gekk erfiðlega gegn framliggjandi vörn Dana sem voru fljótir að refsa með mörkum úr hraðaupphlaupum. Og líkt og í öllum leikjunum á mótinu vörðu íslensku markverðirnir varla skot fyrstu 15 mínúturnar. Á meðan var Niklas Landin í góðum gír í marki Dana og varði 12 skot í fyrri hálfleik (55%). Skyttur íslenska liðsins voru óvirkar í fyrri hálfleik og langt fram eftir leik. Ólafur Guðmundsson skoraði sitt eina mark tveimur mínútum fyrir leikslok á meðan Rúnar Kárason skoraði sex mörk á síðustu 20 mínútum. Ekkert kom heldur út úr Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Arnóri Atlasyni og Janus Daði Smárason átti erfitt uppdráttar. Danir voru átta mörkum yfir í hálfleik, 11-19, og strax í upphafi seinni hálfleik var munurinn kominn upp í 10 mörk, 11-21. Íslenska liðið sýndi loksins lit í stöðunni 14-23. Íslendingar skoruðu þá fjögur mörk í röð og minnkuðu muninn í fimm mörk, 18-23. En svo fór allt í sama farið aftur. Danir stigu á bensíngjöfina og náðu afgerandi forskoti á nýjan leik. Á endanum munaði átta mörkum á liðunum, 26-34. Rúnar var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk. Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með fimm mörk og Gunnar Steinn Jónsson skoraði fjögur mörk úr jafnmörgum skotum.
Handbolti HM 2017 í Frakklandi Mest lesið „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Körfubolti Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð Körfubolti „Menn vissu bara upp á sig sökina“ Körfubolti Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Enski boltinn Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Enski boltinn Dramatísk endurkoma Real hélt veikum vonum á lífi Fótbolti Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: PGA-meistaramótið fer af stað Sport Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti Fleiri fréttir Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Sjá meira
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti