Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 25-26 | Grátlegt tap í bardaga gegn Slóveníu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. janúar 2017 15:15 Íslensku strákarnir spiluðu góða vörn í leiknum. Hér taka Rúnar Kárason og Arnór Þór Gunnarsson á Slóvena. vísir/epa
Strákarnir okkar urðu að sætta sig við tap í æsilegum slag gegn Slóveníu í dag. Lokatölur 25-26, Slóvenum í vil. Strákarnir gáfu allt sem þeir gátu en það vantaði gamla góða herslumuninn og grátlegt tap niðurstaðan. Fyrri hálfleikur var æði skrautlegur. Íslenska liðið skoraði ekki mark utan af velli fyrr en eftir átta mínútur og það mark kom frá hornamanninum, Arnóri Þór Gunnarssyni. Þökk sé Björgvini Páli í markinu var Arnór að jafna leikinn þar í 2-2. Björgvin hóf leikinn af sama krafti og gegn Spáni. Varði eins og berserkur og hélt liðinu hreinlega á floti. Smám saman small vörnin og liðin héldust í hendur lengi framan af fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn var ansi stirður og mörkin komu helst úr hornunum. Varnarleikur Slóvena var reyndar mjög öflugur og strákarnir hreinlega fundu ekki færin. Það var líka hiti í leikmönnum beggja liða og þurfti að stía mönnum í sundur. Þetta var alvöru bardagi. Eftir því sem leið á hálfleikinn náði Slóvenía tveggja marka forskoti þökk sé varnarleiknum. Slóvenar skoruðu svo flautumark í lok hálfleiksins og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 8-11. Í fyrsta sinn sem munurinn var þrjú mörk í leiknum. Það var ljóst að liðið þurfti að laga sóknarleikinn mikið fyrir seinni hálfleikinn en hornamennirnir skoruðu helming marka liðsins í fyrri hálfleik. Engin skytta komst í gang og þar áttu menn mikið inni. Þeir rembdust og rembdust við að komast í gegnum miðjuna en þar voru Slóvenar of þéttir fyrir. Varnarmenn liðsins stóðu bara og biðu eftir okkar mönnum. Of auðvelt. Íslenska liðið byrjaði síðari hálfleikinn af krafti. Skoraði tvö fyrstu mörk hálfleiksins og leikurinn galopinn. Strákarnir fóru loksins að fá hraðaupphlaup og með Bjarka Má Elísson í banastuði voru þeir búnir að jafna leikinn, 13-13, þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Það var rosaleg barátta kominn í okkar menn sem lömdu hraustlega frá sér. Maður óttaðist um tíma að það myndi sjóða upp úr. Smám saman tók íslenska liðið yfir, einfaldlega sterkara og baráttuglaðara. Guðjón Valur kom Íslandi svo yfir, 17-16, af vítalínunni þegar 20 mínútur voru eftir. Slóvenar náðu aftur frumkvæðinu en íslenska liðið var farið að fá mörk frá skyttunum sínum og leikurinn í járnum. Því miður var markvarslan hjá okkur ekki sú sama og í fyrri hálfleik en það var allt annað að sjá sóknarleikinn þar sem Arnór Atlason stýrði málum af röggsemi. Á ögurstundu fór íslenska liðið að fá á sig ódýr mörk. Eftir hraða miðju og síðan er markverði var fórnað fyrir sóknarmann. Liðið var að fá brottvísanir og hélt ekki haus. Að gefast var samt ekki í myndinni hjá okkar mönnum. Er Slóvenarnir virtust ætla að stinga af náði íslenska liðið vopnum sínum á nýjan leik og klóraði sig inn í leikinn. Lokakaflinn var æsispennandi og áhorfendur í fullri höll í Metz öskruðu úr sér lungun. Því miður dugði hetjuleg barátta okkar manna ekki að þessu sinni.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Enski boltinn Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Enski boltinn Asensio hetjan í endurkomu Villa Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Handbolti „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Handbolti Fleiri fréttir Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Haukar halda sér í toppbaráttunni Janus Daði öflugur í súru tapi Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Elvar Örn öflugur og Melsungen áfram á toppnum Selfoss sá ekki til sólar á Hlíðarenda Íslendingalið Benfica og Gummersbach halda í vonina Þriðja landsliðskona liðsins orðin ófrísk Ýmir sneri aftur í góðum sigri Sjá meira
Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Handbolti
Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Handbolti