Hollendingar eru enn að ná sér eftir að hafa tapað tvisvar fyrir Íslendingum í undankeppni EM 2016 en landsliðið er nú í hættu á að missa af öðru stórmótinu í röð.
Holland tapaði 2-0 á móti Búlgaríu í undankeppni HM um helgina og er nú í fjórða sæti í sínum riðli. Það þarf hollenskt kraftaverk til að bjarga málunum og Hollendingar ákváðu að gera stóra breytingu.
Hollenska knattspyrnusambandið rak þjálfarann Danny Blind eftir leikinn og hefur nú leitað til eins síns farsælasta þjálfara til að finna rétta manninn til að taka við landsliðinu sínu.
Louis van Gaal hefur verið atvinnulaus síðan að hann hætti með Manchester United síðasta vor en hann hefur sjálfur stýrt hollenska landsliðinu í tvígang, fyrst 2000 til 2002 og svo aftur 2012 til 2014.
Louis van Gaal mun vera ráðgjafi hollenska sambandsins í leitinni að næsta þjálfara en það fylgir þó sögunni að Van Gaal er samt sem áður einn af þeim sem gætu hreppt starfið. Van Gaal hefur gríðarlega reynslu og hefur unnið á mörgum stöðum. Hann ætti því að hafa miklar skoðanir hvaða leið eigi að fara.
Stefna hollenska sambandsins eins og staðan er í dag er að ráða erlendan þjálfara.
Hollendingar hafa ekki verið með erlendan þjálfara síðan að Austurríkismaðurinn Ernst Happel stýrði liðinu frá 1977 til 1978.
Blind var búinn að þjálfa liðið síðan 2015 en Guus Hiddink hætti með liðið eftir eitt ár í starfinu.
Nú er bara að sjá hvort Louis van Gaal komi til bjargar Hollendingum.
Louis van Gaal til bjargar Hollendingum

Tengdar fréttir

Hollendingar steinlágu í Búlgaríu | Níu Grikkir náðu stigi í Brussel
Hollenska landsliðið tapaði óvænt stigum gegn Búlgaríu á útivelli í kvöld en eftir leikinn er Holland sex stigum frá Frökkum í efsta sæti eftir fimm umferðir.

Landsliðsþjálfari Hollands íhugar að segja upp eftir óvænt tap
Það er mikil pressa á Danny Blind, þjálfara hollenska landsliðsins, eftir 0-2 tap gegn Búlgaríu í gær en það stefnir allt í að Holland missi af öðru stórmótinu í röð.

Daley Blind stoltur af pabba sínum sem var rekinn
Danny Blind var látinn taka pokann sinn eftir 2-0 tap á móti Búlgaríu.

Blind rekinn eftir tapið í Búlgaríu
Hollenska knattspyrnusambandið staðfesti rétt í þessu að ákveðið hefði verið að segja upp samningi Danny Blind sem þjálfara hollenska landsliðsins í knattspyrnu