Berglind Björg skoraði fyrsta landsliðsmarkið í öruggum sigri á Slóvakíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2017 16:54 Berglind kom inn á sem varamaður í hálfleik og skoraði annað mark íslenska liðsins á 78. mínútu. vísir/anton
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta bar sigurorð af því slóvakíska, 0-2, í vináttulandsleik í Senec í Slóvakíu í dag. Elín Metta Jensen og Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins. Þetta var fyrsta landsliðsmark þeirrar síðarnefndu. Íslenska liðið var sterkari aðilinn í leiknum í dag. Margrét Lára Viðarsdóttir kom sér í dauðafæri strax á 7. mínútu en markvörður Slóvakíu varði. Á 19. mínútu léku herbergisfélagarnir Hallbera Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir vel saman á vinstri kantinum, sú fyrrnefnda sendi boltann inn á vítateiginn þar sem Elín Metta kom á ferðinni og skoraði. Þetta var fimmta mark Valskonunnar fyrir íslenska landsliðið. Staðan í hálfleik var 0-1. Freyr Alexandersson breytti um leikkerfi í hálfleik, fór úr 3-4-3 í 4-2-3-1, og skipti Berglindi Björgu og Elísu Viðarsdóttur inn á fyrir Rakel Hönnudóttur og Önnu Björk Kristjánsdóttur. Íslenska liðið skapaði ekki mikið framan af seinni hálfleik en á 70. mínútu komst Fanndís í gott færi en skaut framhjá. Átta mínútum síðar komst varamaðurinn Agla María Albertsdóttir, sem spilaði sinn fyrsta landsleik í dag, inn fyrir vörn Slóvakíu en markvörðurinn varði í horn. Katrín Ásbjörnsdóttir tók hornspyrnuna og sendi á kollinn á Berglindi Björgu sem skallaði boltann í netið og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og væntanlega þungu fargi af henni létt. Fleiri urðu mörkin ekki og öruggur 0-2 sigur Íslands staðreynd. Íslenska liðið heldur nú til Hollands þar sem það mætir heimakonum 11. apríl næstkomandi.Byrjunarlið Íslands var þannig skipað:Mark: Guðbjörg GunnarsdóttirVörn: Anna Björk Kristjánsdóttir (46. Elísa Viðarsdóttir), Sif Atladóttir og Glódís Perla ViggósdóttirMiðja: Rakel Hönnudóttir (46. Berglind Björg Þorvaldsdóttir), Sara Björk Gunnarsdóttir (87. Málfríður Erna Sigurðardóttir), Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir.Sókn: Elín Metta Jensen (70. Guðmunda Brynja Óladóttir), Margrét Lára Viðarsdóttir (70. Katrín Ásbjörnsdóttir) og Fanndís Friðriksdóttir (70. Agla María Albertsdóttir).
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Í beinni: Slavia Prag - Valur | Valskonur með augun á undanúrslitunum Handbolti Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Í beinni: Real Madrid - Girona | Spennan á Spáni heldur áfram Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Í beinni: Newcastle - Nottingham Forest | Áhugaverð viðureign á St James' Park Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Sjá meira