Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tryggði sér silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum í San Marinó eftir fimmtán stiga sigur á Lúxemborg í lokaleik liðsins á leikunum.
Ísland vann leikinn 59-44 en þetta var óopinber úrslitaleikur um silfrið þar sem Malta hafði þegar tryggt sér gullverðlaunin með sínum þriðja sigri í röð í gær.
Helena Sverrisdóttir minnti á sig og var með 21 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar en Emelía Ósk Gunnarsdóttir var næststigahæst með 10 stig.
Íslenska liðið hafði ekki spilað í hálft ár fyrir þessa leiki á Smáþjóðaleikunum og lykilmenn eins og Helena Sverrisdóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir og Sara Rún Hinriksdóttir hafa allar ekkert verið með liðinu í meira en fimmtán mánuði. Það sást vel á mjög slökum fyrsta leik en liðið hefur síðan spilað betur með hverjum leik.
Landsliðsfyrirliðinn Helena Sverrisdóttir lék ekki í tapinu á móti Möltu í fyrsta leik vegna meiðsla og klikkaði síðan á öllum átta skotum sínum utan af velli í öðrum leiknum á móti Kýpur.
Helena fann aftur á móti taktinn í dag þar sem hún hitti úr 5 af 9 skotum sínum og öllum sjö vítunum. Hún var að vinna sín fimmtu silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum í dag.
Keflvíkingurinn Emelía Ósk Gunnarsdóttir hefur staðið sig vel á mótinu en hún skoraði 10 stig í þessum leik sem var hennar fyrsti landsleikur í byrjunarliði.
Íslenska liðið komst í 9-0 í byrjun leiksins, var 13-9 yfir eftir fyrsta leikhlutann, vann síðan annan leikhlutann 18-10 og var tólf stigum yfir í hálfleik, 31-19. Íslenska liðið var síðan með gott tak á leiknum í seinni hálfleiknum og sigurinn var aldrei í mikilli hættu.
Atkvæðamestar í íslenska liðinu í leiknum:
Helena Sverrisdóttir 21 stig, 7 stoðsendingar, 7 fráköst
Emelía Ósk Gunnarsdóttir 10 stig
Sara Rún Hinriksdóttir 6 stig, 6 fráköst
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 5 stig, 10 fráköst
Hildur Björg Kjartansdóttir 5 stig, 8 fráköst
Berglind Gunnarsdóttir 5 stig
Sandra Lind Þrastardóttir 5 stig
Thelma Dís Ágústsdóttir 2 stig
Íslenska kvennalandsliðið á Smáþjóðaleikum í gegnum tíðina:
1989 á Kýpur - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull)
1991 í Andorra - bronsverðlaun (Lúxemborg vann gull)
1993 á Möltu - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull)
1995 í Lúxemborg - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull)
1997 á Íslandi - gullverðlaun
2003 á Möltu - bronsverðlaun (Malta vann gull)
2005 í Andorra - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull)
2009 á Kýpur - silfurverðlaun (Malta vann gull)
2013 í Lúxemborg - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull)
2015 á Íslandi - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull)
2017 í San Marínó - silfurverðlaun (Malta vann gull)
Samantekt hjá íslenska kvennalandsliðinu:
Gull - 1 - (1997)
Silfur - 8 - (1989, 1993, 1995, 2005, 2009, 2013, 2015, 2017)
Brons - 2 - (1991, 2003)
Flest gullverðlaun:
7 - Lúxemborg (1989, 1991, 1993, 1995, 2005, 2013, 2015)
3 - Malta (2003, 2009, 2017)
1 - Ísland (1997)
Helena hrökk í gang og stelpurnar tryggðu sér silfur á fimmtu leikunum í röð
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið

„Sorgardagur fyrir Manchester City“
Enski boltinn

Blikar mættu með málningarpenslana í garðinn hjá Gylfa
Íslenski boltinn


„Erum í basli undir körfunni“
Körfubolti

Fær ekki að dæma vegna samskiptaörðugleika
Körfubolti



Finnur Freyr framlengdi til 2028
Körfubolti

„Það erfiðasta er ennþá eftir“
Körfubolti

Fleiri fréttir
