Markalaust í Dublin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júní 2017 20:30 Katrín Ásbjörnsdóttir, markahæsti leikmaður Pepsi-deildar kvenna, var í byrjunarliðinu í Dublin. mynd/hafliði breiðfjörð Ísland og Írland gerðu markalaust jafntefli í vináttulandsleik á Tallagt vellinum í Dublin í kvöld. Þetta var næstsíðasti leikur íslenska liðsins fyrir EM í Hollandi í næsta mánuði. Kveðjuleikurinn fyrir EM er gegn Brasilíu á Laugardalsvellinum á þriðjudaginn kemur. Leikurinn í kvöld einkenndist af mikilli baráttu. Þá gerðu aðstæður liðunum erfitt fyrir en það hellirigndi fyrir leik og í seinni hálfleik. Írska liðið lá aftarlega í leiknum og það íslenska stjórnaði ferðinni og fékk bestu færin. Hallbera Guðný Gísladóttir skaut yfir úr úrvalsfæri eftir rúman hálftíma sem og Katrín Ásbjörnsdóttir um miðjan seinni hálfleik. Í uppbótartíma var Berglind Björg Þorvaldsdóttir svo hársbreidd frá því að skora sigurmark Íslands. Hún átti þá skalla í gegnum klofið á Marie Hourihan í marki Íra sem náði að bjarga sér á endanum. Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan tímann í vörn Íslands, í sínum fyrsta landsleik, og stóð sig vel. Agla María Albertsdóttir lék sömuleiðis sinn fyrsta leik í byrjunarliði Íslands. Þá lék Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir rúman klukkutíma í nýrri stöðu, sem vængbakvörður.Byrjunarlið Íslands var þannig skipað:Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir (46. Sandra Sigurðardóttir)Varnarmenn: Glódís Perla Viggósdóttir, Sif Atladóttir (46. Málfríður Erna Sigurðardóttir) og Ingibjörg SigurðardóttirVængbakverðir: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hallbera Guðný GísladóttirMiðjumenn: Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði, og Sigríður Lára Garðarsdóttir (66. Rakel Hönnudóttir)Framherjar: Fanndís Friðriksdóttir (68. Svava Rós Guðmundsdóttir), Katrín Ásbjörnsdóttir (80. Berglind Björg Þorvaldsdóttir) og Agla María Albertsdóttir
Ísland og Írland gerðu markalaust jafntefli í vináttulandsleik á Tallagt vellinum í Dublin í kvöld. Þetta var næstsíðasti leikur íslenska liðsins fyrir EM í Hollandi í næsta mánuði. Kveðjuleikurinn fyrir EM er gegn Brasilíu á Laugardalsvellinum á þriðjudaginn kemur. Leikurinn í kvöld einkenndist af mikilli baráttu. Þá gerðu aðstæður liðunum erfitt fyrir en það hellirigndi fyrir leik og í seinni hálfleik. Írska liðið lá aftarlega í leiknum og það íslenska stjórnaði ferðinni og fékk bestu færin. Hallbera Guðný Gísladóttir skaut yfir úr úrvalsfæri eftir rúman hálftíma sem og Katrín Ásbjörnsdóttir um miðjan seinni hálfleik. Í uppbótartíma var Berglind Björg Þorvaldsdóttir svo hársbreidd frá því að skora sigurmark Íslands. Hún átti þá skalla í gegnum klofið á Marie Hourihan í marki Íra sem náði að bjarga sér á endanum. Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan tímann í vörn Íslands, í sínum fyrsta landsleik, og stóð sig vel. Agla María Albertsdóttir lék sömuleiðis sinn fyrsta leik í byrjunarliði Íslands. Þá lék Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir rúman klukkutíma í nýrri stöðu, sem vængbakvörður.Byrjunarlið Íslands var þannig skipað:Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir (46. Sandra Sigurðardóttir)Varnarmenn: Glódís Perla Viggósdóttir, Sif Atladóttir (46. Málfríður Erna Sigurðardóttir) og Ingibjörg SigurðardóttirVængbakverðir: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hallbera Guðný GísladóttirMiðjumenn: Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði, og Sigríður Lára Garðarsdóttir (66. Rakel Hönnudóttir)Framherjar: Fanndís Friðriksdóttir (68. Svava Rós Guðmundsdóttir), Katrín Ásbjörnsdóttir (80. Berglind Björg Þorvaldsdóttir) og Agla María Albertsdóttir
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Enski boltinn Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Fótbolti Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Körfubolti Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Körfubolti Þróttur skoraði sex og flaug áfram Íslenski boltinn Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Fótbolti Valur marði Fram í framlengingu Íslenski boltinn Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Mari uppgefin: „Ældi átta sinnum á brautinni“ Sport Fleiri fréttir Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Þróttur skoraði sex og flaug áfram Valur marði Fram í framlengingu Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Mikael Egill spilaði allan leikinn þegar Venezia komst upp úr fallsæti Hafa notað sama byrjunarliðið í öllum leikjunum Ancelotti tekur við Brasilíu Fjölskylda Glódísar sá hana taka við meistaraskildinum Neyddust til þess að sofa á æfingasvæðinu Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Hafa unnið FH tólf sinnum í röð Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Hrósuðu Alexander: „Varð ekkert var við það að þarna væri fimmtán ára strákur inni á vellinum“ Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Sjáðu skrípamörkin í Víkinni og öll mörkin úr sjöttu umferðinni Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Eiður Smári missir hvert metið á fætur öðru til ungra KR-inga Sveindís Jane slapp við síðasta sætið á íslenska listanum Halla forseti, Sveppi og Gummi Ben í nýju tónlistarmyndbandi fyrir EM Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Heimir Guðjónsson: Ef það var einhvern tíma lag að vinna Víking þá var það núna „Þurftum að grafa djúpt“ Uppgjörið: Víkingur - FH 3-1 | Víkingar aftur á toppinn eftir hauskúpuleik Rosenörn „Ef við mætum svona í leiki munum við fá fullt af stigum” Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Uppgjörið: KA - Breiðablik 0-1 | Blikar sluppu með skrekkinn í blálokin Hilmir Rafn innsiglaði sigurinn hjá toppliðinu Sjá meira
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð