Nainggolan skaut Inter í Meistaradeildina en AC Milan situr eftir Arnar Geir Halldórsson skrifar 26. maí 2019 20:28 Radja skaut Inter í Meistaradeildina vísir/getty
Það verða Atalanta og Inter sem verða fulltrúar Ítalíu í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð auk Juventus og Napoli sem höfðu fyrir löngu tryggt sér efstu tvö sætin en lokaumferð deildarinnar fór fram í dag og áttu fjögur lið möguleika á 3. og 4.sæti. AC Milan situr eftir með sárt ennið þrátt fyrir að hafa unnið 2-3 sigur á SPAL þar sem Franck Kessie tryggði sigurinn skömmu fyrir leikslok. AC hafnar í 5.sætinu og fer því í Evrópudeildina líkt og AS Roma sem hafnar í 6.sæti en Rómverjar áttu mjög veika von á að ná fjórða sætinu fyrir lokaumferðina en 2-1 sigur þeirra á Parma dugði ekki til. Atalanta og Inter unnu nefnilega sína leiki en Atalanta vann öruggan 3-1 sigur á Sassuolo á meðan Inter marði 2-1 sigur á Empoli en staðan var 1-1 fram á 81.mínútu þegar belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan kom Inter í forystu. Atalanta og Inter ljúka því keppni með 69 stig en AC Milan með 68 og Roma 66. Er þetta í fyrsta skipti í sögu Atalanta sem félagið öðlast keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu. Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson lék allan leikinn á miðju Udinese þegar liðið lagði Cagliari 1-2 en Emil skoraði fyrra mark Udinese í leiknum. Emil og félagar ljúka keppni í 12.sæti. Úrslit kvöldsins þýða jafnframt að Empoli er fallið niður í B-deildina en Genoa lyfti sér úr fallsæti með því að gera jafntefli við Fiorentina.
Ítalski boltinn Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu „Búin að taka mig inn í fjölskylduna“ Úthúðar þjálfaranum: Fékk betri æfingar í flóttamannabúðunum Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Sagði Fernandes að hann færi hvergi Lífvörðurinn bannaður: „Leyfið mér að hjálpa Messi“ Tárin streymdu hjá gömlu United-hetjunni „Ég veit bara að þetta er mjög vont“ 570 milljóna uppsafnað tap hjá Everton Tekjur Wrexham í hæstu hæðum Haaland væntanlega úr leik í deildinni Saka klár í slaginn á ný Fékk fjóra bakka af eggjum fyrir að vera maður leiksins Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Hvorki zombie-bit né tattú Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ Ekki þess virði að taka áhættu með Glódísi „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Glódís ekki með í landsleikjunum Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni Vill hópfjármögnun fyrir Antony Sjá meira