Umdeild refsing skilaði Hamilton enn einum sigrinum Arnar Geir Halldórsson skrifar 9. júní 2019 20:19
Lewis Hamilton styrkti stöðu sína á toppnum í keppni ökuþóra í Formúla 1 en hann vann sigur þrátt fyrir að hafa komið annar í mark á Gilles Villenueve brautinni í Montreal í dag. Sebastian Vettel á Ferrari var nefnilega fyrstur í mark en hann fékk fimm sekúndna refsingu þegar skammt var eftir af kappakstrinum og var sú ákvörðun vægast sagt umdeild en Ferrari-menn voru æfir yfir dómnum og þá sérstaklega Vettel sjálfur. Hann gekk berserksgang um svæðið eftir kappaksturinn og lét dómarana hafa það óþvegið. Hann hugðist ekki mæta á blaðamannafund sem ætlaður er þeim sem enda í þremur efstu sætunum en lét að lokum segjast og mætti þangað. Áður en hann mætti þangað sýndi hann vanþóknun sína með því að skipta um skilti fyrir framan bíl Hamilton.Parc Ferme... #CanadianGP#F1pic.twitter.com/cJOuT5hnwP — Formula 1 (@F1) June 9, 2019"Ekki baula á Lewis"Áhorfendur í Kanada virtust á einu máli um ákvörðunina og var mikið baulað þegar Hamilton var krýndur sigurvegari. „Eina sem ég get sagt er að ég tók ekki þessa ákvörðun svo ég veit ekki af hverju þeir ættu að baula á mig,“ sagði Hamilton og Vettel tók undir orð hans. „Fólkið ætti ekki að baula á Lewis. Það á að baula á þá sem taka þessar ákvarðanir,“ sagði hundfúll Vettel.Hér fyrir neðan má sjá atvikið sem varð til þess að Vettel var refsað en líklegt má þykja að niðurstöður kappaksturins muni hafa einhverja eftirmála. Kanada kappakstrinum verður gerð frekari skil á Vísi á morgun.Race. Defining. Moment. #CanadianGP #F1 pic.twitter.com/053sau3we1— Formula 1 (@F1) June 9, 2019
Formúla Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira