Totti hættur hjá Roma: „Þetta er eins og að deyja“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. júní 2019 16:30 Totti og Danielle De Rossi. Þeir eru báðir farnir frá Roma. vísir/getty
Francesco Totti, leikja- og markahæsti leikmaður í sögu Roma, er hættur hjá félaginu sem hann hefur verið hjá í þrjá áratugi. Totti tók við stjórnendastöðu hjá Roma eftir að hann lagði skóna á hilluna vorið 2017. Totti hélt blaðamannafund í dag þar sem hann gagnrýndi eigendur Roma harðlega og sagði að hann hafi ekki fengið að koma nálægt neinum ákvörðun sem voru teknar hjá félaginu. „Ég fékk aldrei tækifæri til að tjá mig. Þeir héldu mér á hliðarlínunni. Fyrsta árið mitt í starfi var það kannski skiljanlegt en í ár skildi ég hvað þeir vildu. Þeir héldu mér utan við allt,“ sagði Totti. Hann segir að sé erfitt að yfirgefa Roma, miklu erfiðara en þegar hann hætti að spila. „Þetta er miklu verra en að hætta að spila. Að yfirgefa Roma er eins og að deyja. Og það væri örugglega betri ef ég myndi deyja,“ sagði Totti. Hann segir að bandarískir eigendur Roma, sem keyptu félagið 2011, hafi unnið leynt og ljóst að því að losa sig við heimamennina, Rómverjana. „Síðan þeir keyptu félagið hafa þeir gert allt til að ýta okkur til hliðar,“ sagði Totti og bætti við að Roma væri hálf stjórnlaust, enda kæmi aðaleigandinn, James Pallotta, sjaldan til Rómar. „Þegar hann er ekki hérna gera allir það sem þeim sýnist.“ Brotthvarf Totti kemur mánuði eftir að önnur Roma-goðsögn Danielle De Rossi lék sinn síðasta leik fyrir félagið. Samningur hans var ekki endurnýjaður. Roma endaði í 6. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Að því loknu var Paulo Fonseca ráðinn knattspyrnustjóri Roma.
Ítalía Ítalski boltinn Tengdar fréttir De Rossi kvaddi Roma með mikilli viðhöfn Einn af bestu sonum Roma lék kveðjuleik sinn fyrir félagið í gær. 27. maí 2019 10:00 Mest lesið Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn Körfubolti Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Íslenski boltinn Fresta fleiri fótboltaleikjum vegna fráfalls Francis páfa Fótbolti Dagskráin í dag: Nágrannaslagir í Bestu karla og Bónus kvenna Sport Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Enski boltinn Hörður undir feldinn Körfubolti Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Körfubolti „Svona er úrslitakeppnin“ Handbolti Dramatík í Manchester Enski boltinn Fleiri fréttir Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Fresta fleiri fótboltaleikjum vegna fráfalls Francis páfa Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi „Fótbolti er þannig að allir þurfa að taka ábyrgð“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga „Skoraði síðast þrennu í sjöunda flokki“ Olmo hetja Börsunga Dramatík í Manchester Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Uppgjörið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Sjá meira
De Rossi kvaddi Roma með mikilli viðhöfn Einn af bestu sonum Roma lék kveðjuleik sinn fyrir félagið í gær. 27. maí 2019 10:00