Hamilton vann sögulegan sigur á Silverstone Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. júlí 2019 14:45 Hamilton hefur unnið sjö af tíu keppnum tímabilsins í Formúlu 1. vísir/getty
Lewis Hamilton vann sigur á heimavelli, Silverstone, í tíundu keppni ársins í Formúlu 1. Hamilton er nú orðinn sigursælastur í sögu breska kappakstursins. Hann hefur unnið hann sex sinnum, einu sinni oftar en Jim Clark og Alain Prost.F1- Most wins at the GP of Great Britain 6 - @LewisHamilton (+1) 5 - Jim Clark 5 - Alain Prost#BritishGP#F1 — Gracenote Live (@GracenoteLive) July 14, 2019 Hamilton hafði betur í baráttu við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, Valtteri Bottas. Charles Leclerc á Ferrari og Max Verstappen á Red Bull háðu harða keppni um 3. sætið framan. Leclerc hafði betur en þetta er fjórða skiptið í röð sem hinn 21 árs Leclerc kemst á pall. Verstappen varð að gera sér 5. sætið að góðu en samherji hans á Red Bull, Frakkinn Pierre Gasly, varð fjórði. Það er besti árangur hans í ár. Samherji Leclercs á Ferrari, Sebastian Vettel, átti martraðardag en hann fékk tíu sekúndna refsingu eftir árekstur við Verstappen. Vettel endaði í 16. sæti og hefur ekki komist á pall í þremur keppnum í röð.LAP 44/52 Vettel handed a 10-second penalty by race stewards for the collision with Verstappen#BritishGP#F1pic.twitter.com/BiVxMSrEFO — Formula 1 (@F1) July 14, 2019 Hamilton hefur unnið sjö af tíu keppnum tímabils og tvisvar endað í 2. sæti. Hann er með 39 stiga forskot á Bottas í keppni ökuþóra. Verstappen er þriðji með 126 stig. Mercedes er með 135 stiga forskot á Ferrari í keppni bílasmiða.A race to remember at Silverstone#BritishGP#F1pic.twitter.com/IAlJkw6xy5 — Formula 1 (@F1) July 14, 2019
Bretland England Formúla Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir Verstappen óánægður með Red Bull fyrir að reka liðsfélagann Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Ballið búið hjá Hamilton og Vergara Red Bull búið að gefast upp á Lawson Hamilton dæmdur úr leik í Kína Piastri vann Kínakappaksturinn Hamilton vann sprettkeppnina en Piastri á ráspól Fyrsti ráspóll Hamiltons í rauðu Eddie Jordan látinn Formúlan gæti farið til Bangkok Lando Norris aðeins 0,8 sekúndum á undan heimsmeistaranum í markið „Þetta tímabil verður ekki fyrir hjartveika“ McLaren með tvo fremstu menn á ráspól í fyrstu keppni ársins „Kominn tími á konu í Formúlu 1“ F1 2025: Guð gefðu okkur besta tímabil sögunnar Cadillac verður með lið í formúlu 1 Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen Sjá meira