Blikar komnir áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir sigur í Prag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2019 17:51 Berglind Björg skoraði þrjú af fjórum mörkum Breiðabliks í einvíginu gegn Spörtu Prag. vísir/bára
Breiðablik er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir útisigur á Spörtu Prag, 0-1. Blikar unnu fyrri leikinn á Kópavogsvelli, 3-2, og einvígið, 4-2 samanlagt.LEIK LOKIÐ! Breiðablik vinnur 1-0 og 4-2 samanlagt! Blikar fara áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu! — Blikar.is (@blikar_is) September 26, 2019 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, markadrottning Pepsi Max-deildar kvenna 2019, skoraði sigurmark Breiðabliks á 55. mínútu. Hún skoraði tvívegis í fyrri leiknum og skoraði því þrjú af fjórum mörkum Breiðabliks í einvíginu gegn Spörtu Prag. Tékknesku meistararnir, sem eru fastagestir í Meistaradeildinni, sóttu stíft í fyrri hálfleik. Vörn Breiðabliks hafði í nógu að snúast og þá varði Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir, sem stóð í marki Blika í stað Sonnýar Láru Þráinsdóttur, tvisvar vel. Lucie Martínková komst næst því að skora fyrir Spörtu Prag þegar skalli hennar fór í stöngina á marki Breiðabliks á 38. mínútu. Í upphafi seinni hálfleiks skoraði Sparta Prag en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Blikar sóttu í sig veðrið eftir þetta og á 55. mínútu skoraði Berglind Björg eftir sendingu Öglu Maríu Albertsdóttur.55 mín: MARK! BREIÐABLIK SKORAR! Áslaug Munda með frábæran sprett fram kantinn, finnur Öglu Maríu sem sendir fyrir þar sem Berglind Björg er mætt og skorar!! Staðan 1-0 fyrir Breiðblik og 4-2 samanlagt! #fotbolti#blikarkoma — Blikar.is (@blikar_is) September 26, 2019 Berglind Björg komst í dauðafæri á 63. mínútu en heimakonur björguðu á síðustu stundu. Tveir mínútum síðar skoraði Agla María en markið var dæmt af vegna brots. Breiðablik var hársbreidd frá því að komast í 0-2 á 66. mínútu þegar Alexandra Jóhannsdóttir átti skot í slá. Blikar vildu fá vítaspyrnu þegar Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir féll í vítateignum á 79. mínútu en ekkert var dæmt. Fleiri urðu mörkin ekki og Blikar fögnuðu fræknum sigri og sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Dregið verður í 16-liða úrslitin á mánudaginn.Geggjað lið! pic.twitter.com/Gc341h8Fby— Blikar.is (@blikar_is) September 26, 2019
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Sjá meira