Anton Sveinn setti nýtt glæsilegt Íslandsmet og náði fjórða besta tímanum inn í úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2019 10:15 Anton Sveinn Mckee. vísir/anton
Anton Sveinn Mckee synti sig glæsilega inn í úrslitin í 200 metra bringusundi á EM í 25 metra laug í Glasgow í dag og syndir því úrslitasund annað daginn í röð. Anton er búinn að setja fjögur Íslandsmet á fyrstu tveimur dögunum á Evrópumeistaramótinu. Anton Sveinn Mckee bætti Íslandsmetið verulega í 200 metra bringusundinu en hann kom í mark á 2:03,67 mínútum en gamla metið sem hann átti sjálfur var 2:04.37 mínútur frá HM 2018. Anton varð annar í sínum riðli og náði fjórða besta tímanum í undanrásunum. Hann er því til alls líklegur í úrslitasundinu í kvöld. Það voru Hollendingur, Svíi og Þjóðverji sem náðu þremur bestu tímunum en Anton var 1,26 sek á eftir fyrsta manni. Anton Sveinn varð fyrstu eftir 50 metra (28,31 sek.), annar eftir 100 metra (1:00,05 mín.), þriðji eftir 150 metra (1:32,09 mín.) og náði síðan að hækka sig um eitt sæti á síðustu 50 metrunum. Hin átján ára gamla Jóhanna Elín Guðmundsdóttir var nær undanúrslitunum í 50 metra flugsundi en reynsluboltinn Ingibjörg Kristín Jónsdóttir. Þær voru samt báðar nokkuð frá þessu, Jóhanna Elín endaði í 27. sæti og Ingibjörg Kristín náði 28. besta tímanum í undanrásunum. Sextán efstu komust áfram í undanúrslitin. Jóhanna Elín synti á 27,19 sekúndum og varð önnur í sínum riðli en Ingibjörg Kristín Jónsdóttir synti á 27,23 og varð síðustu í sínum riðli.
Sund Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Sport Fleiri fréttir Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Sú yngsta í sögunni til að vinna: „Var rosalega stresuð“ Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum „Eigum skilið að finna til“ Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Sjá meira