Erlent
105 106 107 108 109 110 111 112 113 … 334 ›
Hver átti sprengjuna? Mikil óvissa ríkir um það hver beri ábyrgð á sprengingunni sem varð við al Ahli Arab sjúkrahúsið á Gasa í gærkvöldi. Strax eftir sprenginguna lýsti heilbrigðisráðuneyti Gasa, sem stýrt er af Hamas, því yfir að hundruð hefðu fallið og særst og beindu forsvarsmenn Hamas-samtakanna spjótum sínum strax að ísraelska hernum. Erlent 18.10.2023 14:26
Tuttugu Repúblikanar greiddu atkvæði gegn Jordan Tuttugu þingmenn Repúblikanaflokksins greiddu í gær atkvæði gegn því að Jim Jordan yrði næsti forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Jordan er þó borubrattur og stefnir á aðra atkvæðagreiðslu seinna í dag. Erlent 18.10.2023 12:10
Hvetur forseta til að kalla saman þing sem fyrst Donald Tusk hvetur forseta Póllands til að kalla saman þing sem fyrst svo hægt sé að greiða atkvæði þar um nýjan forsætisráðherra. Stjórnarviðræður þurfa að fara fram í kjölfar kosninga um helgina þar sem núverandi ríkisstjórnarmeirihluti var felldur. Erlent 18.10.2023 09:04
Vaktin: Ísraelar leyfa takmarkaða birgðaflutninga til Gasa Ísraelsmenn segja samtökin Íslamskt jíhad bera ábyrgð á harmleiknum á al Ahli Arab sjúkrahúsinu á Gasa í gærkvöldi en um hafi verið að ræða eldflaugaskot sem mistókst með þeim afleiðingum að hluti flaugarinnar eða brotajárn lenti á sjúkrahúsinu. Erlent 18.10.2023 08:32
Ætla sér að gefa út nýja ákæru á hendur Alec Baldwin Saksóknarar í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum ætla sér að gefa út nýja ákæru á hendur leikaranum Alec Baldwin í tengslum við rannsókn á andláti kvikmyndatökukonunnar Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust í október 2021. Erlent 18.10.2023 08:27
Ver fúlgum fjár í lögmenn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, halar inn peningum frá stuðningsmönnum sínum en ver stórum hluta peninganna í lögfræðingakostnað. Á sama tíma aflar hann fjár á grundvelli dómsmála gegn honum. Erlent 18.10.2023 08:14
Þúsundir mótmæltu árásinni á sjúkrahúsið í nótt Þúsundir flykktust út á götur borga í Mið-Austurlöndum í nótt til að mótmæla árás á al-Ahli al-Arabi sjúkrahúsið á Gasa, þar sem 300 til 500 manns eru taldir hafa látið lífið. Erlent 18.10.2023 06:38
Greta Thunberg handtekin á mótmælum í Lundúnum Sænski loftslagsaðgerðarsinninn Greta Thunberg var handtekinn í Lundúnum í dag þegar hún og aðrir aðgerðarsinnar mótmæltu fyrir utan ráðstefnu eldsneytisfyrirtækja. Erlent 18.10.2023 00:03
Vaktin: Fimm hundruð sagðir látnir eftir loftárás á spítala Á fimmta hundrað eru látin eftir loftárás á spítala á Gasaströndinni síðdegis í dag. Erlent 17.10.2023 18:07
„Þið getið tekið við þeim“ Abdullah annar, konungur Jórdaníu, þvertók fyrir það í dag að ríki hans eða Egyptaland tækju á móti palestínsku flóttafólki frá Gasaströndinni og Vesturbakkanum. Tryggja þyrfti öryggi fólksins þar sem þau eru. Erlent 17.10.2023 16:28
Bein útsending: Jordan gerir atrennu að embætti þingforseta Þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiða í dag atkvæði um hvort Jim Jorda, Repúblikani, verði næsti forseti fulltrúadeildarinnar. Útlit er fyrir að Jordan hafi ekki tekist að tryggja sér nægilega mörg atkvæði úr eigin þingflokki. Erlent 17.10.2023 15:01
Skemmdir á öðrum sæstreng í Eystrasalti Carl-Oskar Bohlin, ráðherra almannavarnamála í Svíþjóðar, segir að skemmdir hafi orðið á sæstreng sem liggur á milli Svíþjóðar og Eistlands í Eystrasalti. Hann segir að ekki hafi orðið rof á strengnum og að hann geti áfram verið starfræktur. Erlent 17.10.2023 14:44
Lík fundið við leit að sjö ára dreng í Noregi Umfangsmikil leit stendur nú yfir að sjö ára dreng sem týndist fyrir tveimur dögum síðan í óbyggðum skammt frá Lindesnes syðst í Noregi. Lögregla segir leitarsvæðið verða stækkað í dag en fjöldi sjálfboðaliða aðstoðar við leitina. Erlent 17.10.2023 14:10
Hinir látnu í Brussel eldri karlmenn Svíarnir sem drepnir voru í hryðjuverkaárás í Brussel í Belgíu í gær voru karlmenn, annar á sjötugsaldri og hinn á áttræðisaldri. Annar mannanna var búsettur í Stokkhólmi og hinn bjó erlendis. Erlent 17.10.2023 13:10
Sagðar meðal verstu árása sem Rússar hafa orðið fyrir Úkraínumenn segjast hafa grandað minnst níu herþyrlum Rússa, loftvarnarkerfi, skotfærum og öðrum hergögnum í árásum á tvo flugvelli í nótt. Rússneskir herbloggarar segja árásirnar meðal þeirra alvarlegustu sem Rússar hafa orðið fyrir í stríðinu. Erlent 17.10.2023 11:32
Pútín staddur í Kína Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er staddur í Peking í Kína, þar sem hann mun funda með Xi Jinping, forseta Kína. Þetta er í annað sinn sem Pútín fer frá Rússlandi síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst í fyrra en Alþjóðasakamáladómstóllinn hefur gefið út handtökuskipun gagnvart honum. Erlent 17.10.2023 10:47
Stjórnarandstaðan tryggði sér meirihluta atkvæða Þrír stjórnarandstöðuflokkar í Póllandi, sem í kosningabaráttunni börðust gegn stjórnarflokknum Lögum og réttlæti, náði að tryggja sér meirihluta þingsæta í þingkosningunum sem fram fóru á sunnudaginn. Landskjörstjórn birti lokatölur sínar í morgun. Erlent 17.10.2023 10:41
Teiknari Guardian til 40 ára látinn fjúka vegna meintrar gyðingaandúðar Breski miðillinn Guardian hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við skopmyndateiknarann Steve Bell, eftir að hann skilaði inn mynd sem miðlinum þótti ýta undir fordóma gegn gyðingum. Erlent 17.10.2023 10:35
„Það að tortíma Hamas er bara tímabundin lausn fyrir Ísrael“ Helsti sérfræðingur Íslands um málefni Mið-Austurlanda segir tveggja ríkja lausnina, sem lagt var upp með í Oslóarsamkomulaginu fyrir Ísraelsmenn og Palestínumenn, ólíklega til að leysa vanda þjóðanna. Þá sé markmið Ísraelsmanna til að tortíma Hamas bara tímabundin „lausn“ fyrir Ísraelsmenn. Erlent 17.10.2023 10:11
Hæstiréttur Indlands neitar að lögleiða hjónabönd samkynja para Hæstiréttur Indlands hefur úrskurðað gegn lögleiðingu hjónabands samkynja para, með þeim rökum að dómstóllinn hafi ekki vald til að taka þá ákvörðun. Erlent 17.10.2023 09:02
Bankastarfsmaður rekinn fyrir að kaupa kaffi og samloku fyrir konuna Vinnumáladómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að Citibank hafi verið heimilt að reka starfsmann sem rukkaði bankann um endurgreiðslu fyrir tvo kaffibolla, tvær samlokur og tvo pastarétti. Erlent 17.10.2023 07:48
Árásarmaðurinn í Brussel skotinn af lögreglu Árásarmaðurinn í Brussel sem skaut tvo Svía til bana í gærkvöldi og særði einn til viðbótar var skotinn til bana af lögreglu snemma í morgun. Erlent 17.10.2023 06:41
Heimsókn Bidens staðfest og ný von um neyðaraðstoð Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti margra klukkustunda langan fund með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gær sem lauk snemma í morgun. Erlent 17.10.2023 06:31
Árásarmannsins enn leitað Árásarmannsins, sem skaut tvo Svía til bana í Brussel fyrr í kvöld, er enn leitað. Sá sem er grunaður um verknaðinn segist sjálfur heita Abdesalem Al Guilani, en í myndbandi sem er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum játar hann á sig verknaðinn. Erlent 16.10.2023 23:56
Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands. Erlent 16.10.2023 22:11
Tveir látnir eftir skotárás í Brussel Minnst tveir eru látnir eftir skotárás í Brussel, höfuðborg Belgíu. Árásin átti sér stað klukkan sjö í kvöld að staðartíma. Hæsta viðbúnaðarstig vegna hryðjuverka hefur verið virkjað. Erlent 16.10.2023 19:36
Pólska ríkisstjórnin fallin: „Fólk er búið að fá nóg af þessu“ Íhaldsflokkurinn Lög og réttlæti er búinn að missa meirihluta sinn í pólska þinginu samkvæmt útgönguspá. Metþátttaka var í þingkosningunum sem fóru fram í gær en pólskur túlkur sem búsettur er hér á Íslandi segir að almenningur hafi vaknað upp úr ákveðnum doða eftir að stjórnvöld þrengdu verulega að mannréttindum Pólverja. Það hafi verið hreyfiaflið sem fékk fólk til að halda á kjörstað. Erlent 16.10.2023 13:26
Meintur „Bítill ISIS“ gengst við hryðjuverkastarfsemi Maður sem grunaður er um að hafa verið einn af „Bítlum Íslamska ríkisins“, hefur játað aðild að hryðjuverkastarfsemi fyrir dómi í Bretlandi. Aine Leslie Davis játaði í morgun að hafa borið skotvopn í hryðjuverkatilgangi og gekkst hann einnig við tveimur ákærum um að hafa fjármagnað hryðjuverkastarfsemi. Erlent 16.10.2023 11:49
Støre hristir hressilega upp í ríkisstjórninni Anniken Huitfeldt hefur látið af embætti utanríkisráðherra Noregs. Þetta eru þeirra breytinga á norsku ríkisstjórninni sem Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti um í morgun. Erlent 16.10.2023 11:32
Bananaprins kjörinn forseti í Ekvador Bananaerfinginn Daniel Noboa var í gærkvöldi kjörinn forseti Ekvador og verður hann sá yngsti til að sinna embættinu í sögu landsins. Noboa hefur heitið því að taka á ofbeldisöldu sem ríður yfir landið af hörku og auka atvinnustig ungs fólks. Erlent 16.10.2023 10:09