Erlent
74 75 76 77 78 79 80 81 82 … 334 ›
Trump vill frest fram yfir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, hefur beðið Hæstarétt Bandaríkjanna um að fresta úrskurði um hvort hann njóti friðhelgi gegn lögsókn þar til fram yfir forsetakosningarnar í nóvember. Verði dómarar við þeirri kröfu verður líklega ekki hægt að rétta yfir honum vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 og tilrauna hans til snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Erlent 13.2.2024 15:42
Gera aðra tilraun með hernaðaraðstoð Bandarískir öldungadeildarþingmenn samþykktu í dag frumvarp um 95,3 milljarða dala hernaðaraðstoð til Úkraínu, Ísraels og Taívan auk mannúðaraðstoðar til Palestínumanna. Frumvarpið var samþykkt eftir næturlangt málþóf nokkurra þingmanna Repúblikanaflokksins. Erlent 13.2.2024 13:34
Segja Kínverja hafa hreiðrað um sig innan mikilvægra innviða Svo virðist sem Kínverjar hafi um margra ára skeið unnið að því að koma fyrir hugbúnaði innan mikilvægra innviða í Bandaríkjunum, ekki til að valda skemmdum nú heldur til að „liggja í dvala“ þar til þörf krefur eða tilefni þykir til að grípa til árása. Erlent 13.2.2024 11:47
Eftirlýst í Rússlandi vegna sovéskra minnisvarða Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands. Taimar Peterkop, nokkurskonar ráðuneytisstjóri ríkisstjórnar Eistlands er einnig eftirlýstur í Rússlandi en talskona utanríkisráðuneytis Rússlands segir þau eftirlýst vegna niðurrifs á sovéskum minnisvörðum. Erlent 13.2.2024 10:55
Segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum Armin Papperger, forstjóri vopnaframleiðandans Rheinmetall, segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum á ný. Hann segir skotfærabirgðir álfunnar á þrotum. Erlent 13.2.2024 09:06
„Komast hvert? Til tunglsins? Hvert á að flytja þetta fólk?“ Leiðtogar á Vesturlöndum virðast vera að missa þolinmæðina gagnvart Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, og aðgerðum Ísraelshers á Gasa. Erlent 13.2.2024 06:44
„Hvert getum við farið?“ Palestínskir flóttamenn og aðrir íbúar í Rafah á suðurhluta Gasa eru gríðarlega óttaslegnir í aðdraganda innrásar Ísraelshers. Harðar loftárásir hersins hafa dunið á borginni síðustu daga. Erlent 12.2.2024 23:34
Sagður kalla Netanjahú drullusokk Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður út í Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og hefur kallað hann drullusokk. Það hefur hann meðal annars gert í samræðum við stuðningsmenn forsetaframboðs síns og snýst reiði forsetans að mestu um það hvernig Netanjahú hefur haldið á spöðunum varðandi hernað Ísrael á Gasaströndinni. Erlent 12.2.2024 16:16
Kennedy biðst afsökunar á Super Bowl-auglýsingu Robert F. Kennedy yngri hefur beðið fjölskyldu sína afsökunar á auglýsingu tengdri framboði hans til forseta Bandaríkjanna. Hluti af auglýsingu hans fór í að sýna andlit frænda hans heitins, John F. Kennedy, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Erlent 12.2.2024 16:10
Stökkbreyttir úlfar gætu hjálpað í baráttu gegn krabbameini Stökkbreyttir úlfar sem ráfa um götur Tsjernobyl virðast hafa þróað með sér gríðarlegt þol gegn krabbameini. Vísindamenn vona að rannsóknir á genum úlfanna geti hjálpað til við baráttu gegn krabbameini í mönnum. Erlent 12.2.2024 14:24
Frakkar herða útlendingalög með umdeildri breytingu í Indlandshafi Sem hluti af nýrri útlendingalöggjöf Frakklands munu þeir sem fæðast á eyjaklasanum Mayotte ekki lengur sjálfkrafa vera franskir ríkisborgarar. Íbúar klasans hafa mótmælt á götum úti í þrjár vikur vegna yfirvofandi breytinga. Erlent 12.2.2024 14:07
Stórbruni í vatnsrennibrautagarði Liseberg Mikill eldur hefur blossað upp í Oceana, vatnsrennibrautargarði skemmtigarðsins Liseberg, í Gautaborg í Svíþjóð. Til stóð að opna vatnsrennibrautargarðinn í sumar. Erlent 12.2.2024 11:11
Austin aftur inn á sjúkrahús og aðstoðarráðherrann tekinn við í bili Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur falið aðstoðarráðherra sínum að sinna embættisskyldum sínum á meðan hann dvelst á spítala vegna vandamála í þvagblöðru. Erlent 12.2.2024 08:58
Trump harðlega gagnrýndur fyrir boð til Rússa um að ráðast gegn Nató Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir bandalagið reiðubúið og viljugt til að vernda alla bandamenn sína, eftir að greint var frá því að Donald Trump hefði eggjað Rússa til að ráðast á þau ríki sem ekki legðu nægt fjármagn til varnarmála. Erlent 12.2.2024 07:24
Sprengjuregn á Rafah og tveimur gíslum bjargað Ísraelar segjast hafa bjargað tveimur gíslum sem verið hafa í haldi Hamas samtakanna frá því í október. Erlent 12.2.2024 07:13
Stubb bar nauman sigur úr býtum Önnur umferð forsetakosninga Finnlands fór fram í dag. Kosningabaráttan stóð milli Alexanders Stubb fyrrverandi forsætisráðherra og Pekka Haavisto fyrrverandi utanríkisráðherra en sá fyrrnefndi sigraði. Erlent 11.2.2024 21:14
Starfsmenn flóttamannaaðstoðarinnar hafi verið reknir án sönnunargagna Philippe Lazzarini yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar segist hafa rekið starfsmenn sem sakaðir voru um hollustu við Hamas án nokkurra sönnunargagna og án þess að hafa rannsakað ásakanirnar á hendur þeim. Erlent 11.2.2024 10:40
Segja göng Hamas liggja undir höfuðstöðvum UNRWA Talsmenn Ísraelshers segja að mörg hundruð metra langt ganganet Hamas hafi fundist á Gasa. Göng hryðjuverkasamtakanna liggi meðal annars undir höfuðstöðvum Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNRWA. Erlent 11.2.2024 08:39
Matarbirgðir til sveltandi Gasabúa sitja fastar í ísraelska tollinum Matarbirgðir ætlaðar rúmri milljón Palestínumönnum á vergangi eru fastar í ísraelskri höfn vegna boða ísraelskra yfirvalda. Erlent 10.2.2024 15:02
Skipar hernum að tæma Rafa fyrir innrás Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur skipað ísraelska hernum að gera áætlun um brottflutning allra íbúa frá Rafah. Það á að gera áður en gerð verður allsherjar innrás í borgina en þangað hafa fjölmargir íbúar Gasastrandarinnar flúið á undanförnum mánuðum. Erlent 9.2.2024 16:34
Vill morðingja fyrir blaðamann Vladimír Pútin, forseti Rússlands, segist mögulega tilbúinn í fangaskipti vegna bandarísks blaðamanns sem haldið hefur verið í rússnesku fangelsi í tæpt ár vegna ásakana um njósnir. Í staðinn vill hann fá rússneskan njósnara sem situr í fangelsi í Þýskalandi fyrir morð. Erlent 9.2.2024 16:00
Biden brást reiður við skýrslu um leyniskjöl Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem rannsakað hefur opinber og leynileg skjöl sem fundust í vörslu Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, frá þeim tíma er hann var óbreyttur borgari, birti í gær skýrslu um rannsókn sína. Þar sagði hann ekki tilefni til að ákæra Biden en sagði hann hafa vísvitandi haldið eftir leynilegum gögnum og jafnvel sýnt öðrum þau. Erlent 9.2.2024 13:45
Gíslatökumaður skotinn til bana í Sviss Lögregluþjónar í Sviss skutu í gærkvöldi 32 ára mann frá Íran eftir að hann tók fimmtán manns í gíslingu í lest. Maðurinn var vopnaður hníf og öxi og hélt fólkinu í gíslingu í tæpar fjórar klukkustundir. Erlent 9.2.2024 11:18
Pútín segir Musk óstöðvandi Erfðatækni, gervigreind og Elon Musk var á meðal þess sem bar á góma í viðtali bandaríska sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem var birt á samfélagsmiðlinum X í nótt. Erlent 9.2.2024 09:00
Fékk þrjátíu mínútna sögukennslu í tveggja tíma viðtali Fyrstu þrjátíu mínútur tveggja klukkustunda langs viðtals sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladimir Pútín Rússlandsforseta fóru í yfirferð forsetans yfir sögu Rússlands, frá 9. öld og fram til valdatíma Leníns. Erlent 9.2.2024 06:44
Rúmur helmingur allra mannvirkja í Gasa eyðilagður Rúmur helmingur allra mannvirkja á Gasasvæðinu hafa orðið fyrir skemmdum eða eyðilagst aljgörlega síðan innrás Ísraela hófst þann 7. október á síðasta ári. Erlent 8.2.2024 23:22
Selenskí vék yfirherforingja úr starfi Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur vikið Valerí Salúsjní yfirmanni úkraínska hersins úr starfi. Erlent 8.2.2024 22:55
Kjörgengi Trumps rætt í Hæstarétti Málflutningur um það hvort ríki Bandaríkjanna hafi rétt til að meina Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að vera á kjörseðlum þar í forsetakosningunum sem haldnar verða í nóvember, stendur nú yfir fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. Erlent 8.2.2024 16:12
Tusk segir Repúblikönum að skammast sín Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Repúblikönum í öldungadeild Bandaríkjaþings að skammast sín. Er það í kjölfar að þingmennirnir felldu frumvarp sem þeir höfðu sjálfir beðið um og komið að því að semja. Það frumvarp sneri meðal annars að hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum. Erlent 8.2.2024 16:02
Felldu einn af leiðtogum Kataib Hezbollah í drónaárás Einn af æðstu leiðtogum vígahópsins Kataib Hezbollah var felldur í drónaárás Bandaríkjamanna í Bagdad í Írak í gær. Hann er sagður hafa komið með beinum hætti að skipulagningu og framkvæmd árása á bandaríska hermenn í Írak, Sýrlandi og Jórdaníu. Erlent 8.2.2024 09:46