Lífið

Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“
Önnur plata rapparans Birgis Hákons, sem ber stutta titilinn 111, kemur út í dag. Af því tilefni verður Birgir með partý á Prikinu í kvöld þar sem hann treður upp með góðum gestum. Á plötunni eru lög sem Birgir hefur samið á undanförnum sex árum.

Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar
Þrír Íslendingar keppa á heimsmeistaramótinu í hraðpúsli sem fram fer á Spáni. Fulltrúar okkar hafa púslað sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar.

Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn
Bandaríska leikkonan Hayden Panettiere segir að hún muni aldrei jafna sig á því að hafa misst bróður sinn Jansen Pattiere. Hann lést í febrúar á síðasta ári einungis 28 ára gamall.

Fagnaði 35 árum í sólinni
Crossfit-stjarnan Anníe Mist Þórisdóttir fagnaði 35 ára afmæli sínu með fjölskyldunni í blíðviðrinu á Spáni í gær. Hún kveðst vera mikið afmælisbarn.

Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn
Á eftirsóttum stað við Laugardalinn í Reykjavík er finna reisulegt 380 fermetra einbýlishús, teiknað af Sigvalda Thordarsyni arkitekt. Húsið var byggt árið 1961. Á síðustu árum hefur húsið verið mikið endurnýjað er hið smekklegasta.

„Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“
„Þegar ég gekk með þriðja barnið mitt, fann ég fyrir mikilli pressu frá öllum sem vonuðu að þetta yrði stelpa,“ segir sænska fyrirsætan og áhrifavaldurinn, Kenza Zouiton Subosi, sem á þrjá drengi með eiginmanni sínum Aleksandar Subosic.

Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum
Theodór Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi segir staðreyndina þá að fjölskyldur á Íslandi eyði ekki nægilega miklum tíma saman. Þetta komi fyrst og fremst niður á börnum og segir Theodór það mikil mistök af hálfu foreldra að eyða ekki meiri tíma með börnum sínum.

Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar
Doktor í umhverfissálfræði telur að sagnfræði og tilfinningaleg tengsl hafi víða orðið útundan við uppbyggingu í miðborginni síðustu misseri. Við fórum með honum í göngutúr um miðborgina í Íslandi í dag.

Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir fékk nóg af því að vera í hringiðu drama í Samtökunum '78 fyrir átta árum síðan og ákvað að flytjast búferlum til Bretlands þegar hún kynntist ástinni sinni óvænt á ráðstefnu erlendis. Ugla segir skrítið að flytja aftur til Íslands eftir átta ár úti, margt hafi breyst.

Selur slapp úr hvalskjafti
Ferðamenn í Hvalaskoðun undan ströndum Washington-ríkis í Bandaríkjunum í síðustu viku sáu heldur óhefðbundna sýn þegar þau sáu sel í hvalskjafti. Hnúfubakurinn hafði óvart gleypt selinn en kom aftur upp á yfirborðið til að losna við selinn.

Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi
Atli Snær matreiðslumeistari, eigandi Komo veisluþjónustu, mun keppa fyrir Íslands hönd á evrópsku götubitaverðlaunum. Um er að ræða stærstu götutakeppni í heimi þar sem nítján þjóðir keppist um titillinn: Besti Götubitinn í Evrópu.

Verslunarhjón selja glæsivillu í 108
Hjónin Ingibjörg Kristófersdóttir og Hákon Hákonarson, sem eiga tískuvöruverslanirnar Mathilda, Englabörn og Herragarðinn, hafa sett einbýlishús sitt við Byggðarenda á sölu.

Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug
Félagarnir Garpur I. Elísabetarson, Sigurður Karlsson og Leifur Runólfsson skella sér á Blátind í Morsárdal í nýjasta þættinum af Okkar eigið Ísland. Þá tókst þeim að finna dularfulla náttúrulaug að göngu lokinni sem enginn veit hvar er. Laugin reyndist hálfógeðsleg en það stöðvaði ekki göngugarpana.

Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina
Hið vinsæla bílabíó snýr aftur laugardaginn 21. september á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð Reykjavík, enn sem fyrr er það eitt það stærsta sem haldið hefur verið hér á landi. Risastóru bíótjaldi verður komið fyrir við reiðhöllina í Víðidal þar sem tekið verður á móti gestum í sannkallaða kvimyndaveislu.

„Það spurði þig enginn“
Tónlistarmanninum Pharrell Williams þykir ekki mikið til þess koma þegar aðrar stjörnur tjá sig um pólitík. Hann segist sjálfur halda sínum skoðunum út af fyrir sig.

Mætt aftur til vinnu
Katrín Middleton prinsessan af Wales er mætt aftur til vinnu. Katrín birti nýverið tilkynningu á samfélagsmiðlum þar sem hún sagðist hafa lokið krabbameinsmeðferð.

Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér
Jæja haustið er komið, rútínan mætt og foreldrar landsins fagna. Eitt af því sem ég heyri frá foreldrum er að sumarið sé tími sem einkennist af mjög mörgu… öðru en kynlífi. Þannig að kannski má segja að sumarið sé ekki alltaf tíminn!

Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar
Við Ásvallagötu í Vesturbæ Reykjavíkur er að finna glæsilegt 320 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið var byggt árið 1941 eftir hönnun Þóris G. Baldvinssonar en var stækkað árið 1961 eftir teikningu Kjartans Sveinssonar.

Ljúffengar vöfflur í nestisboxið
Það getur verið mikill hausverkur fyrir foreldra að útbúa nesti fyrir börnin alla morgna fyrir skólann, sem er bæði hollt og spennandi. Helga Magga, næringarþjálfari og matarbloggari, útbjó ljúffengar kotasæluvöfflur sem eru fullkomin næring fyrir litla kroppa.

Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez
Ben Affleck gat ekki haldið höndum sínum út af fyrir sig og lét Jennifer Lopez ekki í friði þegar þau hittust um helgina í bröns í Beverly Hills í Kaliforníu. Þá sáust þau leiðast og kyssa hvert annað, allt þrátt fyrir að standa nú í miðjum skilnaði.

Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann
Hann þolir ekki óheiðarleika en segir þó flesta vera ágæta. Sindri Sindrason fór í morgunkaffi til Brynjars Níelssonar og kynntist mýkri hliðinni hjá alþingismanninum fyrrverandi.

Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi
Kourtney Kardashian segist leyfa börnum sínum að sofa uppi í rúmi hjá sér eins lengi og þau vilja. Sonur hennar hafi gert það þar til hann var sjö ára gamall og dóttir hennar þar til hún var ellefu ára.

Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi
Sólin skein á kaffiþyrsta gesti í opnun verslunarinnar Sjöstrand á Íslandi við Borgartún í Reykjavík síðastliðinn föstudag. Rýmið er fallega hannað í anda merkisins í stílhreinum ljósum og skandinavískum stíl.

Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu
Árshátíð flugfélagsins Play var haldin með glæsibrag í Silfurbergi í Hörpu síðastliðinn laugardag. Um 400 manns mættu í sínu fínasta pússi þar sem þema kvöldsins var glimmer.

Klippt út af myndinni
Bandaríska hertogaynjan Meghan Markle var klippt út af afmælismynd sem breska konungsfjölskyldan birti af eiginmanni hennar Harry Bretaprinsi í gær á samfélagsmiðlum þegar hann átti stórafmæli.

Ein litríkasta íbúð landsins til sölu
Í Bólstaðarhlíð 5 má finna einstaka og litskrúðuga íbúð stútfulla af karakter með bláum, bleikum, gulum og rauðum veggjum. Íbúðin er skráð rúmir 145 fermetrar með tvennar svalir til suðurs og vesturs og glæsilegt nýuppgert baðherbergi.

Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju
Vinkonur leikkonunnar Maríu Thelmu Smáradóttur komu henni verulega á óvart liðna helgi með skemmtilegum gæsunardegi. María birti myndir frá deginum á Instagram þar sem hún virðist hafa skemmt sér vel þrátt fyrir óvænta U-beygju á Læknavaktina.

Gáfu dótturinni þrjú nöfn
Listaparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, gáfu dóttur sinni nafn við hátíðlega athöfn um helgina. Parið greindi frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram.

Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar
Föstudagurinn þrettándi, litadýrð haustsins, tímamót og utanlandsferðir lituðu samfélagsmiðla hjá stjörnum landsins í liðinni viku.

Var Díana prinsessa myrt?
Allt frá hörmulega bílslysinu í París fyrir næstum þrjátíu árum hefur ríkt tortryggni í garð opinberra skýringa á andláti Díönu prinsessu. Mælingar hafa sýnt að næstum fjórir af hverjum tíu Bretum trúðu því ekki að um slys hafi verið að ræða og þriðjungur taldi að hún hafi verið myrt. Var þetta bara bílslys eða er ástæða til að tortryggja opinberar skýringar?