Tíska og hönnun

Baksviðs á hátískuvikunni
Það er alltaf gaman að fá að skyggnast á bak við tjöldin á tískuvikunum. Breska Vogue birti þessar fallegu myndir af fyrirsætum og förðunum áður en þær gengu sýningarpallana.

Baksviðs á hátískuvikunni í París
Það er alltaf gaman að fá að skyggnast á bak við tjöldin á tískuvikunum...

Grafík getur gert mikið fyrir heimilið
Jafnvel þó að grafíkin hafi verið áberandi innanhúss undanfarin ár halda vinsældir hennar ótrautt áfram, sérstaklega í stílhreinum og einföldum rýmum.

Flott fólk á fremsta bekk hjá Chanel
Það er aldrei langt í tískudrósirnar þegar Chanel er annars vegar...

Dásamlegir kjólar Elie Saab
Elie Saab sýndi Houte Couture línu sína á síðasta degi hátískuvikunnar í París í gær. Þar sveif mikil rómantík yfir vötnum, eins og venjan er á sýningunum hjá honum, og voru kjólarnir listaverkum líkastir. Það verður spennandi að sjá hvort við sjáum einhvern þeirra á Óskarsverðlaununum í febrúar, en Saab kjólarnir hafa verið afar vinsælir við það tilefni síðustu ár. Leyfum myndunum að tala sínu máli.

Hárið fékk að fjúka
Hin fjölhæfa Nicole Richie tók af skarið í vikunni og lét klippa af sér hárið. Nú er hún komin með svokallaða “bob”-greiðslu sem á góðri íslensku gæti heitið bobbi.

Grísk rómantík hjá Chanel
Hátískulína Chanel fyrir vor – og sumar '13 var sýnd í París í gær. Karl Lagerfeld, yfirhönnuður Chanel til þrjátíu ára, sagði að innblásturinn af línunni hafi komið til hans í draumi, og eigi að vera einhverskonar ,,grískt leikrit í rómantískum skógi", eins og hann orðaði það. Klassíska Chanel dragtin var að sjálfsögðu á sínum stað í fallegum ljósum litum, sem og litli svarti kjólinn sem fylgt hefur tískuhúsinu frá upphafi.

Svart og gyllt er málið
Það er leikur einn að sjá hverjar heitustu tískustefnurnar eru hverju sinni með því að líta til stjarnanna í Hollywood.

Verður ekki með í tískuvikunni í London
Sænska hönnunarhúsið Acne mun ekki vera með í tískuvikunni í London nú í febrúar. Aðdáendur þurfa þó ekki að örvænta, því tískuhúsið er ekki horfið sjónum, heldur tóku yfirmenn þar á bæ þá ákvörðun að sýna haust og vetrarlínuna frekar í París. Yfirhönnuðurinn Jonny Johansson sagði ástæðuna vera að línan verði ekki tilbúin í tæka tíð, en tískuvikan í París er aðeins seinna í febrúar en sú breska. Acne rekur tvær búðir í París svo þessar breytingar ættu að falla vel í parísarbúa.

Heitustu förðunartrend sumarsins
Í vor og sumar verður af nógu að taka í förðunartískunni. Lífið fékk Ernu Hrund Hermannsdóttur, förðunarfræðing og bloggara hjá Trendnet.is, til að fara í gegnum sína uppáhalds förðunarstrauma í sumartískunni þetta árið ásamt því að gefa okkur góð ráð.

Rjóminn af Resort
Tískuheimurinn er alltaf í kapphlaupi við tímann og þó að það sé ekki komið sumar eru margir farnir að hugsa fram á haust. Millilínurnar, eða Resort'13 voru sýndar á dögunum og lífið tók saman þrjú trend sem verða flott í lok sumars og í haust. Kápur í fallegum litum, dýramunstur frá toppi til táar og rúllukragar.

Michelle Obama klæddist Jason Wu
Það fór ekki framhjá neinum að Barack Obama sór forsetaeiðinn í vikunni. Tískuheimurinn beið þess að sjá hverju forsetafrúin myndi klæðast við tilefnið , en síðustu vikur hafa margir reynt að rýna í klæðaburð hennar í gegnum tíðina og reyna þannig að spá fyrir um klæðnaðinn. Svo fór að hún klæddist sérsaumuðum kjól frá hönnuðinum Jason Wu sem klæddi hana einstaklega vel. Þá var hún í skóm frá Jimmy Choo. Michelle virðist kunna vel við hönnun Jason Wu, þar sem hún klæddist einnig kjól frá honum þegar eiginmaður hennar sór eiðinn árið 2009.

Nýtt andlit H&M
Franski söngfuglinn Vanessa Paradis er nýtt andlit umhverfisvænu fatalínu sænsku verslanakeðjunar H&M. Myndatakan fór fram í kastala og er draumi líkast. Sjá meira á Trendnet.is.

Ég elska varaliti og nota þá daglega
María Björk Sigurpálsdóttir fyrirsæta og klæðskeranemi hugsar vel um húðina og hárið. Hún er óhrædd við að nota eldrauðan varalit og eyeliner enda fer það henni áberandi vel. María upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Litadýrð á hátískusýningu Atelier Versace
Hátískuvikan hófst í gær í París. Hátískusýningarnar, eða Haute Couture, eru sá viðburður sem tískuspekúlantar eru yfirleitt hvað spenntastir fyrir, en það eru aðeins nokkrir hönnuðir sem uppfylla skilyrðin til að geta talist vera Haute Couture. Versace reið á vaðið í þetta sinn með litríkri og skemmtilegri línu sem var svo sannarlega eitthvað fyrir augað.

Gucci-gyðjur
Sjónvarpskonan Kelly Ripa og leikkonan nýgifta Evan Rachel Wood eru með svipaðan fatasmekk – þó ólíkar séu.

Saffran opnar í Hafnarfirðinum
Tveir nýir Saffran-veitingastaðir opna í Bæjarhrauni og á Bíldshöfða á næstunni.

Á réttum stað
Ingvar Helgason er annar hluti fatahönnunartvíeykisins Ostwald Helgason, en hönnun hans og sambýliskonu hans Susanne Ostwald vakti mikla athygli tískuspekúlanta á síðasta ári. Ingvar lifir og hrærist í heimi tískunnar í dag.

Notar krem sem multi-taskar eins og vindurinn
Elísabet Ormslev söngkona með meiru upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún notar daglega.

TREND - víðar gallabuxur
Gallabuxur eru eitthvað sem aldrei fer úr tísku. En þó þær séu alltaf inn fáum við þó að sjá mismunandi útgáfur af þeim ár hvert. Víðar, og jafnvel rifnar, gallabuxur eru vinsælar um þessar mundir og hafa stjörnurnar mikið sést klæðast þeim í daglegu amstri. Við skulum skoða nokkrar myndir.

Fjölbreytileiki í fermingargreiðslum
"Nú fer að líða að fermingum 2013 og mjög spennandi tímar framundan hjá fermingarbörnum. Þetta er aldurinn sem þau vita hvað þau vilja og sem betur fer er enginn eins," segir Helena Hólm hárgreiðslumeistari og eigandi Hárgreiðslustofu Helenu Stubba-lubbar spurð út í fermingargreiðslurnar hjá stúlkum.

Snúðar í sumar
Það er alltaf þægilegt að smella hárinu í háan snúð þegar maður er á hraðferð. Þess vegna hentar ansi vel að snúðarnir verða eitt heitasta hártrendið í sumar. Margar fegurðardísir í Hollywood hafa sést með snúða upp á síðkastið. Við skulum skoða hvernig þær útfærðu þessa einföldu hárgreiðslu.

Fimm hundruð milljónir fyrir megahús
Ofurparið William H. Macy og Felicity Huffman borguðu nýverið 3,8 milljónir dali, tæplega fimm hundruð milljónir króna, fyrir glæsihýsi í Hollywood-hæðum.

Sýnikennsla - kvenlegur hanakambur
Theodóra Mjöll - bloggari á Trendnet og höfundur einni af vinsælustu bókum síðasta árs, Hárið, sýnir hér hversu auðvelt er að gera frumlega greiðslu í hárið sem mundi sóma sér vel á árshátíðinni jafn sem á rauða dreglinum.

TREND – öðruvísi dýramunstur
Dýramunstur hafa haldið velli síðustu ár og ekkert lát virðist vera á þeim vinsældum. Þessa dagana eru það þó ekki endilega hefðbundin munstur sem eru áberandi, heldur hafa margir hönnuðir leikið sér með hugmyndina. Við skulum skoða hvernig þeir notuðu snáka og hlébarðamunstur þetta season.

Toppar í tísku
Toppar eru heitasta hártrendið um þessar mundir, og verða áfram fram á sumar. Lífið tók saman myndir af nokkrum stjörnum sem sést hafa með topp upp á síðakastið.

Hannar vinabönd í nýjum búning
Guðrún Tara Sveinsdóttir vakti athygli fyrir hárspennur- og bönd sem hún byrjaði að selja í Kronkron í desember undir nafninu Dancing Deer. Spennurnar eru sérstakar að því leiti að þær eru búnar til með svokallaðri vinabanda hnýtiaðferð. Viðbrögðin við spennunum voru stórgóð og eru þær nú nánast uppseldar. Guðrún vinnur hörðum höndum að því að búa til annað upplag þessa dagana, en það er mikil nákvæmnisvinna þar sem hnýtingarnar eru allar handgerðar.

Íslendingur myndar fyrir Eurowoman og ELLE
Hörður Ingason útskrifaðist úr ljósmyndanámi frá Medieskolerne Viborg í Danmörku fyrir um ári síðan. Síðan þá hefur hann svo sannarlega ekki setið auðum höndum, en meðal verkefna sem hann hefur fengist við eru myndþættir fyrir Eurowoman og Elle.

Nýjasta herralína FENDI innblásin af Íslandi
Silvia Venturini, yfirhönnuður tískuhússins FENDI, segir línuna sem var sýnd á herratískuvikunni í Mílanó fyrir stuttu, vera fyrst og fremst innblásna af Íslandi.

Vörur sem börnin geta erft
"Í Reykjavík er fullt af góðum hönnunarverslunum en samt er smá kimi sem vantar inn í," segir Gunnar M. Pétursson myndlistarmaður, sem opnar vefverslunina Skekk innan skamms.