Viðskipti innlent
93 94 95 96 97 98 99 100 101 … 334 ›
Byggja sjóböð í Önundarfirði Til stendur að byggja sjóböð við Holtsfjöru í Önundarfirði á næstu misserum. Tillögur að byggingu þeirra voru kynntar íbúum á Flateyri og í Önundarfirði nú á dögunum. Viðskipti innlent 28.11.2022 09:02
Færeyska skipaútgerðin með átján starfsmenn í Þorlákshöfn Færeyska skipaútgerðin Smyril Line er komin með átján starfsmenn í Þorlákshöfn. Þar segja menn að lesa megi æðaslátt efnahagslífsins úr flutningunum. Ráðmenn sveitarfélagsins vonast til að það styttist í farþegaferju til Evrópu. Viðskipti innlent 27.11.2022 23:33
Fjárlög ekki auðveldað kjaraviðræður Formaður Samfylkingarinnar segir ummæli seðlabankastjóra og annarra valdamanna um stöðu almennings í landinu hafa farið illa í fólk, enda erfiðir tímar hjá mörgum Íslendingum. Rikisstjórnin hafi ekki auðveldað umhverfið fyrir kjaraviðræður. Viðskipti innlent 27.11.2022 13:28
Arnarlax hyggst kæra 120 milljóna króna sektarákvörðun Arnarlax hyggst kæra ákvörðun Matvælastofnunar um stjórnvaldssekt á fyrirtækið. MAST lagði í dag 120 milljóna króna sekt á fyrirtækið fyrir brot gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og að beita sér fyrir veiðum á strokfiski. Viðskipti innlent 25.11.2022 18:01
Jón Svanberg Hjartarson ráðinn framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar Jón Svanberg Hjartarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar ohf. og mun hann hefja störf 1. janúar 2023. Jón stundaði nám við Lögregluskólann 1993 - 1996 og er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands frá 2018. Auk þess hefur Jón lokið stjórnunarnámi við Lögregluskólann og Endurmenntun HÍ ásamt námi í mannauðsstjórnun hjá Endurmenntun HÍ. Viðskipti innlent 25.11.2022 16:24
120 milljóna sekt lögð á Arnarlax: Vítavert aðgæsluleysi Matvælastofnun hefur lagt 120 milljón króna stjórnvaldssekt á Arnarlax ehf. fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski. Matvælastofnun telur aðgæsluleysi Arnarlax hafi verið vítavert og afleiðingar þess mjög alvarlegar. Viðskipti innlent 25.11.2022 15:28
Gunnar áfram hafnarstjóri Faxaflóahafna Stjórn Faxaflóahafna samþykkti að ráða Gunnar Tryggvason sem hafnarstjóra Faxaflóahafna á fundi sínum í morgun. Ráðgefandi hæfnisnefnd er sögð hafa mælt einróma með ráðningu Gunnars í stöðuna. Viðskipti innlent 25.11.2022 15:14
Frá Fiskifréttum og til Hjálparstarfs kirkjunnar Svavar Hávarðsson hefur hafið störf sem fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Svavar hefur starfað sem blaðamaður og ritstjóri frá árinu 2006. Viðskipti innlent 25.11.2022 12:07
Ásdís og Katla taka við rekstri Lovísu Ásdís Bjarkadóttir og Katla Sif Friðriksdóttir hafa gengið frá kaupum á kynlífstækjaversluninni Lovísu. Þær taka við rekstrinum af stofnanda verslunarinnar, Jóni Þór Ágústssyni, sem ætlar að einbeita sér að öðrum verkefnum. Viðskipti innlent 24.11.2022 19:59
Styrmir Sigurjónsson hættir hjá Arion banka Styrmir Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá bankanum. Viðskipti innlent 24.11.2022 16:53
Icelandair flýgur til Detroit Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til bandarísku stórborgarinnar Detroit næsta vor. Viðskipti innlent 24.11.2022 13:11
Skýrslan stendur óhögguð þrátt fyrir gagnrýni Bankasýslunnar Ríkisendurskoðun segir að skýrsla hennar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka standi óhögguð þrátt fyrir gagnrýni Bankasýslu ríkisins og annarra. Tekið hafi verið tillit til atriða sem Bankasýslan gerði athugasemdir við í umsagnarferli skýrslunnar. Viðskipti innlent 24.11.2022 12:00
Hver fasteignaauglýsing fær nú umtalsvert færri smelli Hver fasteignaauglýsing fær að jafnaði umtalsvert færri smelli nú en áður sem gefur til kynna að færri séu að leita sér að íbúð. Í febrúar síðastliðinn, þegar framboð íbúða var í lágmarki, fékk hver auglýsing á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali 149 smelli á dag en í fyrri hluta nóvember var sú tala komin niður í 42. Viðskipti innlent 24.11.2022 07:52
Segja ráðherra bera ábyrgð á ÍL-sjóði Forsvarsmenn lífeyrissjóða landsins segja lagalega stöðu sjóðanna afar sterka vegna fyrirhugaðra slita ÍL-sjóðs. Ábyrgð ríkisins á skuldum ÍL-sjóðs sé skýr. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var út eftir að lögfræðiálit frá LOGOS var kynnt forsvarsmönnum sjóðanna í dag. Viðskipti innlent 23.11.2022 16:50
Katla og Viðar til Aurbjargar Katla Hlöðversdóttir hefur verið ráðin sem þjónustu- og upplifunarstjóri og Viðar Engilbertsson sem markaðsstjóri hjá fjártæknifyrirtækinu Aurbjörgu. Viðskipti innlent 23.11.2022 13:02
„Við munum hækka vexti eins og þarf“ Stjórnendur peningastefnunefndar Seðlabankans segja það alveg skýrt að nefndin muni hækka stýrivexti frekar, meti hún þörf á því. Seðlabankastjóri segir það alveg skýrt að Seðlabankinn geti ekki verið aðili að loforði um að stýrivextir verði ekki hækkaðir sem hluti af kjarasamningum. Viðskipti innlent 23.11.2022 11:34
Eyesland með hagkvæmasta tilboðið á Keflavíkurflugvelli Íslenska gleraugnaverslunin Eyesland átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um rekstur gleraugnaverslunar á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið mun því opna verslun í flugstöðinni á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Viðskipti innlent 23.11.2022 11:16
Bein útsending: Landsmenn kveðja Stjörnutorg Stjörnutorgi verður lokað í dag eftir 23 ára starfsemi. Kveðjuhóf fer fram á svæðinu klukkan 11:30 og verður Vísir í beinni útsendingu frá tímamótunum. Viðskipti innlent 23.11.2022 10:46
Ragnar Þór segir seðlabankastjóra ganga erinda fjármagnseigenda Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur einsýnt að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri beri hag bankanna og fjármagnseigenda fyrst og síðast fyrir brjósti. Viðskipti innlent 23.11.2022 10:01
Ráðinn fjármála- og rekstrarstjóri Orkustofnunar Ingi Jóhannes Erlingsson hefur verið ráðinn í starf fjármála- og rekstrarstjóra hjá Orkustofnun. Viðskipti innlent 23.11.2022 09:49
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður 25 punkta hækkun Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentustig. Viðskipti innlent 23.11.2022 09:00
Tíunda hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,25 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 5,75 prósent í sex prósent. Viðskipti innlent 23.11.2022 08:31
Halldór og Róbert slíðra sverðin Sættir hafa náðst á milli lyfjafyrirtækisins Alvogen og Halldórs Kristmannssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra, sem bar Róbert Wessman forstjóra þess þungum sökum í fyrra. Alvogen féll frá málsókn gegn Halldóri sem segist nú ekki lengur hafa stöðu uppljóstrara. Viðskipti innlent 22.11.2022 12:18
Ráðin birtingarstjóri hjá Datera Ragnhildur Guðmundsdóttir hefur verið ráðin birtingastjóri birtinga- og ráðgjafafyrirtækisins Datera. Viðskipti innlent 22.11.2022 09:49
Mun leiða markaðsvinnu TourDesk á erlendum mörkuðum Guðmundur F. Magnússon hefur verið ráðinn til að leiða markaðsvinnu TourDesk á erlendum mörkuðum. Viðskipti innlent 21.11.2022 12:27
Samskip fái úrlausn um tiltekin atriði í sátt Eimskips við Samkeppniseftirlitið Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Samskip hafi lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn áfrýjunarnefndar samkeppnismála um tiltekin atriði í sátt Eimskips við Samkeppniseftirlitið frá í júní 2021. Viðskipti innlent 21.11.2022 09:53
Tölvuárás gerð á Mbl.is Tölvuárás var gerð á vefinn Mbl.is fyrr í dag. Vefsíðan hefur legið niðri nú í einn og hálfan tíma. Viðskipti innlent 19.11.2022 15:42
Subway á Íslandi hættir við auglýsingar á RÚV yfir HM Stjarnan ehf., einkaleyfishafi Subway á Íslandi, hefur ákveðið að draga til baka þær auglýsingar sem félagið hafði keypt hjá RÚV fyrir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Félagið ætlar þess í stað að gefa andvirði auglýsinganna til góðgerðasamtaka. Viðskipti innlent 19.11.2022 14:13
Myndavélar í sjálfsafgreiðslukössum sporna gegn þjófnaði Maður var gómaður í verslun í Kópavogi í gærkvöldi við að skanna strikamerki ódýrari vara en hann ætlaði sér að kaupa í sjálfsafgreiðslukassa verslunarinnar. Þetta var í fertugasta og sjötta skiptið sem maðurinn er gripinn við þá iðju. Framkvæmdastjóri Hagkaups segir að þrátt fyrir nokkra svarta sauði sem stunda þetta sé það ekki algengt. Sjálfsafgreiðslukassarnir eru með ákveðnar leiðir til að stöðva þjófana. Viðskipti innlent 19.11.2022 11:46
„Skemmtilegt að opna í gömlu húsi með mikla sögu“ Í áratugi fór fólk með bréf og böggla á aðalpósthúsið í Austurstræti. En nú er öldin önnur og fyrr í kvöld var opnuð þar ný mathöll. Viðskipti innlent 18.11.2022 22:48