
Þjóðfélagið allt ein málstofa
Nokkrir veigamestu þættir stjórnarskrár lýðveldisins eru í rauninni bráðabirgðaráðstöfun sem alþingismenn hafa ekki treyst sér til að fullvinna á þeim sextíu árum sem liðin eru frá því að hún var upphaflega sett. Þetta er niðurstaða ítarlegrar úttektar sem Fréttablaðið birti á sunnudaginn um það hvernig Alþingi og stjórnvöld hafa fjallað um stjórnarskrána frá stofnun lýðveldis. Þó að Alþingi hafi sex sinnum á þessu tímabili ráðist í breytingar á ákveðnum hlutum stjórnarskrárinnar hefur ekki verið hróflað við þeim þáttum sem þingmenn töldu í upphafi mesta ástæðu til að endurskoða eins fljótt og auðið væri.
Atburðir þeir sem urðu fyrr í sumar þegar forseti Íslands beitti í fyrsta sinn synjunarvaldi embættisins gagnvart lögum frá Alþingi hafa orðið til þess að ríkisstjórnin ætlar að ráðast í endurskoðun á þeim þáttum stjórnarskrárinnar er snúa að forsetavaldinu. Reyndar var Davíð Oddsson forsætisráðherra þegar í nóvember í fyrra búinn að tilkynna að ríkisstjórnin væri reiðubúin til samstarfs við stjórnarandstöðuna um að taka upp þráðinn frá 1944 og færa ýmis atriði stjórnarskrárinnar til nútímalegs horfs. Nefndi hann í því sambandi "stjórnarformið og grundvallarreglur stjórnskipunarinnar", einnig "forsetakjör, lögkjör forseta og störf hans og ráðherra". Sagði forsætisráðherra að draga mætti upp "skýrari mynd af ríkjandi stjórnarfari og færa ákvæði um það nær því sem það er í raun".
Þetta er vissulega ein leið sem hægt er að fara. En umræðurnar í sumar benda til þess að úti í þjóðfélaginu, á Alþingi og jafnvel meðal einstakra ráðherra ríkisstjórnarinnar sé áhugi á því að hin fyrirhugaða endurskoðun verði víðtækari en forsætisráðherra hafði í huga í fyrravetur. Hún verði ekki bundin við það eitt að festa í sessi þá skipan sem var áður en forseti Íslands beitti synjunarvaldinu. Sérstaklega hafa menn staldrað við hugmyndir um að auka rétt þjóðarinnar til að fá að hafa síðasta orðið um umdeild og mikilsverð málefni í almennri atkvæðagreiðslu. Slíkur réttur er stjórnarskrárbundinn víða í nágrannaríkjunum.
Sjálfsagt er að endurskoðunin verði enn víðtækari, snúi til dæmis að þjóðkirkjunni, dómstólunum, ríkisstjórninni og sveitarfélögunum, svo nokkuð sé nefnt, og mætti þá hugsa sér að hún færi fram í fyrirfram skipulögðum áföngum á nokkrum árum, jafnvel áratug.
Það væri snjall leikur hjá ríkisstjórninni að einangra ekki hina fyrirhuguðu endurskoðun innan veggja Alþingis heldur gera þjóðfélagið allt að einni málstofu um stjórnarskrána með því að virkja hinn almenna borgara, auglýsa eftir hugmyndum almennings og standa fyrir markvissri og skipulegri þjóðfélagsumræðu. Má í því sambandi taka mið af vinnubrögðum við nýlega endurskoðun stjórnarskráa í Danmörku, Finnlandi, Sviss og Austurríki eins og þeim var lýst í fróðlegri grein Páls Þórhallssonar lögfræðings í Morgunblaðinu á sunnudaginn. Segja má að hér blasi við einstakt tækifæri fyrir ríkisstjórnina til að hrista af sér óorð valdboðsstjórnmála, sem við hana hefur loðað, og endurnýja samband sitt við fólkið í landinu með því að vinna með kjósendum á lýðræðislegan hátt, eiga orðaskipti við þá og taka tillit til skoðana þeirra.
Skoðun

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar