Ófremdarástand í Ártúnsbrekku 7. október 2005 00:01
Ragnar Sær Ragnarsson, frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík, fer heldur óvenjulega leið til að vekja athygli á hinni miklu umferð sem fer um Ártúnsbrekkuna. Hann hyggst dreifa upplýsingum um umferðina til ökumanna við umferðarljósin til móts við Suðurlandsveg upp úr klukkan fjögur í dag. Að sögn Ragnars ríkir ófremdarástand í Ártúnsbrekku á álagstímum þar sem 20 til 25 þúsund bílar sitji nánast fastir á mestu álagstímunum. En í upplýsingunum sem Ragnar hyggst dreifa kemur fram að ríflega 72 þúsund bílar fara um Ártúnsbrekku á sólarhring. Þetta þýðir að á annatíma bæði, kvölds og morgna, skapast allt að hálftíma töf sem leiði til 130 glataðra vinnustunda á ári. Þá megi áætla að óþarfa bensínotkun í hægagangi nemi einum komma fimm lítrum á dag á bíl eða 390 lítrum á ári. Ragnar segir að ekki þýði að bíða eftir Sundabrautinni. Nýta verði betur hjáleiðir í Grafarvogi og Grafarholti auk þess sem íbúar í nýrri byggð nærri Rauðavatni geti notað Breiðholtsbrautina í stað Ártúnsbrekkunnar. Þá megi einnig hugsa sér að hefja kennslu í framhaldsskólum klukkan sjö á morgnana og þannig dreifa umferðinni meira, en fjölmargir framhaldsskólanemar séu á eigin bíl. Aðspurður hvort hann verði ekki í hættu við að dreifa upplýsingunum og hvort hann óttist ekki að trufla umferð, segir Ragnar að hann muni aðeins stökkva á bíla sem hafi stöðvað á rauðu ljósi við gatnamótin og vonandi valdi það ekki miklum truflunum
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Foreldrar hvattir á neyðarfundi skólans til að flytja börnin Innlent Sigu um borð og tóku yfir stjórn íslensks skips Innlent Segir Viðskiptablaðið og Moggann ljúga upp á hann pólitískri hlutdrægni Innlent „Hvor þeirra er líklegri til að geta skákað Kristrúnu Frostadóttur?“ Innlent Banaslys varð í Vík í Mýrdal Innlent Veðrið hefur áhrif á landsfundargesti eftir allt saman Innlent Íslendingur handtekinn vegna barnaníðsefnis sem var búið til af gervigreind Innlent „Breskir hermenn geta séð um sig sjálfir“ Erlent Hvernig skiptast fylkingarnar? Innlent Í verkfalli sem stjórnarmaður þar til að Halla víkur Innlent Fleiri fréttir Banaslys varð í Vík í Mýrdal Bjarni kveður, gervigreind nýtt í barnaníð og bílastæðagjöld Gerði stólpagrín að ríkisstjórnarflokkunum Hvernig skiptast fylkingarnar? Í verkfalli sem stjórnarmaður þar til að Halla víkur Sigu um borð og tóku yfir stjórn íslensks skips Bein útsending: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins Notuðu rafvopn til að yfirbuga ógnandi mann með hamra Veðrið hefur áhrif á landsfundargesti eftir allt saman Lítur ekki svo á að kennarar séu bundnir af kjarasamningum annarra stétta Netöryggissveitin flutt í utanríkisráðuneytið Fækkað um sex hundruð í aðgerðum MAST „Rosalega íslensk umræða“ Íslendingur handtekinn vegna barnaníðsefnis sem var búið til af gervigreind Nokkrar staðsetningar til skoðunar fyrir skóla Hjallastefnunnar Afleiðingar kjarasamnings kennara og rætt við nýjan landlækni Segir Viðskiptablaðið og Moggann ljúga upp á hann pólitískri hlutdrægni Bein útsending: Lærdómur dreginn af Covid-19 Hagræðingartillögur í yfirlestri Væri ekki óviðeigandi að þeir hvíldu saman „Hvor þeirra er líklegri til að geta skákað Kristrúnu Frostadóttur?“ Foreldrar hvattir á neyðarfundi skólans til að flytja börnin Séra Vigfús Þór Árnason látinn Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag „Það eru svo margir sem ekki vita hvað fatlaðir ganga í gegnum“ Taka tillit til „miklu, miklu meiri“ hækkana kennara Ráðherra ætlar að banna síma í skólum Segist nauðbeygður til að gagnrýna Guðrúnu á Facebook fyrst hún svari ekki póstum Keppa í dansi á heimsleikum Special Olympics Fleiri strætóferðir næsta haust og hætt við fækkun bílastæða Sjá meira