

Framsókn: Sami grautur í sömu skál
Jón Sigurðsson er sjálfsagt ágætis maður. En hann verður fulltrúi þess Framsóknarflokks, sem Halldór Ásgrímsson mótaði. Það er flokkurinn, sem innsiglaði langvarandi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og varpaði hugsjón samvinnu og jafnaðar fyrir róða. Sif Friðleifsdóttir gaf til kynna, að hún mundi innleiða gömlu jafnaðargildin á ný, ef hún yrði kosinn formaður. Ég hygg, að hún hefði fært Framsóknarflokkinn aðeins til vinstri, ef hún hefði komist til valda og var ekki vanþörf á. Hún hefði tekið upp róttækari stefnu en Halldór hafði mótað enda þótt hún væri varkár í tali fyrir flokksþingið og gætti þess að styggja ekki Halldór eða fylgismenn hans um of.
Eins og við var að búast hylltu Framsóknarmenn sinn gamla formann á flokksþinginu. Í kveðjuræðu fráfarandi formanns vöktu mesta athygli ummæli hans um, að Bandaríkjunum væri ekki lengur treystandi í varnarmálunum. Bragð er að þá barnið finnur. Um leið og Halldór hættir virðist hann orðinn sammmála Samfylkingunni um, að Ísland eigi nú að halla sér að Evrópu í varnarmálum. Bandaríkin hafi brugðist. Hins vegar minntist Halldór ekkert á Íraksstríðið í kveðjuræðu sinni. Ákvörðun hans og Davíðs Oddssonar um að styðja innrásina í Írak er ljótasti bletturinn á stjórnmálaferli þeirra tvímenninganna. Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, baðst afsökunar á því að hafa lagt falsaðar upplýsingar um hryðjuverkavopn í Írak fyrir Öryggisráð Sþ. Powell er maður að meiri eftir þá afsökunarbeiðni. Halldór hefur hins vegar ekki beðið íslensku þjóðina afsökunar á stuðningi við innrásina í Írak. Hann segir aðeins, að sennilega hefði ákvörðun hans orðið önnur, ef réttar upplýsingar um hryðjuverkavopn í Írak hefðu legið fyrir. ( Viðtal í Mbl.)
Það er ekki nóg. Þessir menn skulda íslensku þjóðinni afsökunarbeiðni.
Það voru miklar vonir bundnar við Halldór Ásgrímsson sem ungan stjórnmálamann áður en hann gekk í björg hjá íhaldinu. En íhaldsvistin breytti honum. Morgunblaðið segir að mesta afrek hans hafi verið að halda Framsókn svo lengi við völd sem raun ber vitni. Það er enginn vandi að halda flokki við völd í samsteypustjórn, ef hann slakar alltaf á stefnu sinni og samþykkir stefnu samstarfsflokksins. Það voru mikil mistök hjá Halldóri að framlengja samstarf við íhaldið eftir síðustu kosningar. Þar réði ferð hégómi um að fá stól forsætisráðherra um stutt skeið.
Halldórs verður lengst minnst fyrir þátt hans í lögleiðingu kvótakerfisins svo og fyrir að beita sér fyrir Kárahnjúkavirkjun. Steingrímur Hermannsson skýrir frá því í ævisögu sinni, að LÍU og Fiskiþing hafi beitt sér fyrir einhvers konar kvótakerfi og Halldór, sem sjávarútvegsráðherra, hafi lagt tillögur þar um fyrir alþingi. Það má því segja, að Halldór sé nokkurs konar faðir kvótakerfisins. En sjálfur kveðst Steingrímur hafa verið á móti þessu kerfi. Að sjálfsögðu hafa margir stjórnmálamenn lagt blessun sína yfir kvótakerfið en mesta ábyrgð bera Framsókn og íhaldið í því efni. Þetta kerfi er eitthvað það ranglátasta, sem innleitt hefur verið hér á landi. Tiltölulega fáum útvöldum voru fengin yfirráð og nýting fiskauðlindarinnar án endurgjalds, en lögum samkvæmt er fiskurinn í sjónum sameign allar þjóðarinnar. Þessir aðilar hafa síðan stöðugt braskað með auðlindina. Nýting hennar hefur gengið kaupum og sölum og þessir aðilar hafa grætt stórfé á braskinu, sumir hafa hagnast um marga milljarða. Gífurlegir fjármunir hafa flust til í þjóðfélaginu við þessi viðskipti og hinir fáu útvöldu hafa hagnast gífurlega. Þetta er mjög ranglátt kerfi, sem verður að afnema eða leiðrétta. Það er enginn heiður fyrir Halldór að vera guðfaðir þessa kerfis.
Kárahnjúkavirkjun og álverksmiðjan á Reyðarfirði munu verða lyftistöng fyrir atvinnulíf Austurlands. Margir Austfirðingar munu því þakklátir Halldóri fyrir forgöngu hans í því máli. En ágreiningur er mikill meðal þjóðarinnar um þessar framkvæmdir allar. Margir telja, að spjöll á náttúrunni séu of mikil og að atvinnuuppbyggingin eystra sé of dýru verði keypt. Athyglisvert er, að þau mál sem helst halda nafni Halldórs Ásgrímssonar á lofti, kvótakerfið og Kárahnjúkavirkjun (og Íraksstríðið) hafa ekkert með samvinnustefnu eða jöfnuð að gera enda hefur Framsókn undir forustu Halldórs snúið baki við stefnu samvinnu og jafnaðar. Þorvaldur Gylfason prófessor segir, að kvótakerfið eigi stærsta þáttinn í aukinni misskiptingu og auknum ójöfnuði hjá þjóðinni. Í stjórnartíð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks síðustu 11 árin hefur auðgildið verið tekið fram yfir manngildið og græðgisstefna hefur verið innleidd í samfélagið. Því miður er ekki að vænta neinnar stefnubreytingar hjá Framsókn með nýjum formanni. Þetta er sami grautur í sömu skál.
Skoðun

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar