Sálumessa Mozarts á miðnætti 3. desember 2006 06:00 Óperukórinn í Reykjavík flytur Sálumessu Mozarts á dánarstundu hans á mánudagsnótt.
Óperukórinn í Reykjavík heldur sérstaka í Langholtskirkju aðfararnótt 5. desember næstkomandi en þá flytur kórinn Sálusmessu Mozarts ásamt hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og einsöngvurum. Tónleikarnir fara fram á dánartíma tónskáldins en hann lést laust eftir miðnætti, aðfararnótt 5. desemberið árið 1791 aðeins 35 ára að aldri. „Okkur þykir verðugt að gera þetta á þessum tíma. Mozart deyr frá þessu verki, hann er langt kominn með það en lauk því ekki. Sálumessan er eitt þekktasta verkið hans og við munum flytja hana eins og hann skyldi við hana og aðeins þá kafla sem hann hafði lokið,“ útskýrir Ásrún Davíðsdóttir sem situr í stjórn óperukórsins. „Við gerðum þetta á sama tíma fyrir tveimur árum og þá myndaðist alveg einstök stemmning í kirkjunni en framtakið vakti mikla hrifiningu hjá bæði áheyrendum og gagnrýnendum. Því var ákveðið að gera þetta aftur nú og reka með því smiðshöggið á þetta afmælisár.“ Rúmlega fimmtíu félagar Óperukórs Reykjavíkur flytja messuna ásamt einsöngvurunum Huldu Björk Garðarsdóttur, Sesselju Kristinsdóttur, Snorra Wium og Davíð Ólafssyni en stjórnandi er Garða Cortes. Mozartsveit skipuð hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur á tónleikunum en konsertmeistari er Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari. Tónleikarnir hefjast kl. 00.30 á mánudagsnótt en hægt er að nálgast aðgöngumiða í síma 552-7366, á heimasíðunni midi.is einnig við innganginn klukkustund fyrir tónleikana.
Mest lesið Val Kilmer er látinn Lífið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Menning Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Lífið Fleiri fréttir Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira