Safnplata frá Ladda 3. desember 2006 15:00 Laddi er að gefa út safnplötuna Hver er sinnar kæfu smiður. MYND/GVA
Skemmtikrafturinn Laddi gefur á næstunni út tvöföldu safnplötuna Hver er sinnar kæfu smiður. Platan hefur að geyma öll vinsælustu lög hans, auk hinna ýmsu grínatriða sem hann hefur gefið út. Alls er að finna fimmtíu mismunandi upptökur á plötunum tveimur, þar á meðal lög með HLH-flokknum og efni frá Halla og Ladda. „Ég fór að spekúlera því ég á stórafmæli í janúar og þá datt mér þetta í hug,“ segir Laddi, sem verður sextugur á næsta ári. „Mér fannst allt í lagi að nota þetta tækifæri enda kominn tími á þetta.“ Laddi hefur verið mjög afkastamikill á ferli sínum. Hann hefur gefið út um þrjátíu plötur og hefur hann 22 sinnum náð gullsölu og tvisvar platínusölu. Laddi leikur um þessar mundir í Viltu finna milljón? og Ronju ræningjadóttur í Borgarleikhúsinu auk þess sem æfingar eru nýhafnar á leikritinu Ó fagra veröld eftir Anthony Neilson í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Verður það frumsýnt milli jóla og nýárs. Þess á milli hefur Laddi verið með uppistand sem hefur vakið mikla lukku.
Mest lesið Val Kilmer er látinn Lífið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Menning Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Lífið Fleiri fréttir Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira