Kóngar hvíta blúsins sameinaðir 4. desember 2006 12:15 The Road to Escondido JJ Cale & Eric Clapton * * * Fín blúsplata í þessum afslappaða stíl sem einkennir tónsmíðar JJ Cale. Tveir gamlir meistarar að gera það sem þeir kunna best.
JJ Cale hefur haft mikil áhrif á tónlist Erics Clapton. Hann samdi lögin Cocaine og After Midnight sem bæði náðu miklum vinsældum þegar Eric Clapton gerði sínar útgáfur af þeim. Þær vinsældir urðu svo til þess að vekja athygli á JJ Cale. Þannig eiga þessir tveir tónlistarmenn hvor öðrum mikið að þakka. Það var þess vegna mikið fagnaðarefni fyrir marga að þeir skildu í fyrsta sinn gera plötu saman. The Road to Escondido hefur að geyma 14 lög. Ellefu þeirra eru eftir Jean Jacques Cale, eitt er eftir Eric Clapton, eitt eftir Clapton og John Mayer og eitt er gamall slagari eftir Brownie McGhee, Sporting Life Blues. Fjölmargir þekktir hljóðfæraleikarar koma fram á plötunni, þ.á.m. Billy Preston og John Mayer. Lögin eru flest í þessum afslappaða stíl sem einkennir tónlist JJ Cale. Djass og kántrískotið blúsrokk í stíl við síðustu sólóplötu JJ Cale, To Tulsa and Back, sem kom út fyrir tveimur árum og vakti óþarflega litla athygli. Á þessu eru þó nokkrar undantekningar, t.d. lagið Dead End Road sem er hressileg blúgrasskeyrsla. Það er ekki hægt að setja mikið út á þessa plötu. Þessi lög standa öll fyrir sínu, flutningurinn er fullkominn og hljómurinn er góður. Platan sýnir að lagasmíðar JJ Cale ná fram því besta í Eric Clapton. Hér eru tveir gamlir meistarar að gera það sem þeir kunna best. Það er fátt sem kemur á óvart, en aðdáendur þessara tónlistarmanna láta sig það sennilega litlu máli skipta. Trausti Júlíusson
Mest lesið Val Kilmer er látinn Lífið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Menning Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira