Skoðun

Er Geir Haarde ábyrgðarlaus?

Fréttablaðið hefur gert einkavæðingu ríkisfyrirtækja ágæt skil á umliðnum árum, s.s. í úttekt Sigríðar Daggar Auðunsdóttur á einkavæðingu Búnaðarbanka Íslands. Sú einkavæðing var einkar sóðaleg þar sem eignir almennings lentu í hópi „fjárfesta“ úr innstu klíku Framsóknarflokksins, t.d. varaformanns flokksins Finns Ingólfssonar.

Kaupendur greiddu ekki krónu fyrr en nokkrum mánuðum eftir að „kaup“ fóru fram og það með láni úr Landsbankanum sem enn var í eigu ríkisins. Aðrir áhugasamir kaupendur en þeir sem voru nátengdir og jafnvel tengdir formanni Framsóknarflokksins fjölskylduböndum voru útlokaðir vegna aðkomu þýsks banka sem átti að vera kjölfestufjárfestir.

Skömmu eftir „kaupin“ gufaði síðan kjölfestan í eignarhaldi bankans upp og bankastjóri þýska bankans varðist allra frétta af aðkomu bankans að kaupunum.

Nú hefur Fréttablaðið rifjað upp vægast sagt vafasama sölu á eign almennings á Íslenskum aðalverktökum til stjórnenda fyrirtækisins. Getur það talist tilviljun að fulltrúi Framsóknarflokksins í einkavæðingarnefnd, Jón Sveinsson, sem var falið það trúnaðarverkefni að selja hlut almennings í Íslenskum aðalverktökum væri eftir söluna orðinn stjórnarformaður sama fyrirtækis?

Þessari spurningu er auðsvarað, hér er ekki um neina tilviljun að ræða heldur hreina og tæra spillingu. Umboðsmenn almennings seldu sjálfum sér eigur sem þeim sem var trúað fyrir að koma í verð.

Það þarf ekki að velta þessu máli lengi fyrir sér til þess að sjá að formaður Sjálfstæðisflokksins Geir Haarde ber mesta ábyrgð á þessu máli. Hann sat ekki einungis sem fjármálaráðherra í ráðherranefndinni sem skipaði og bar ábyrgð á framkvæmdanefnd um einkavæðingu heldur gegndi hann algjöru lykilhlutverki í henni þar sem hann bar ábyrgð á öllum starfsmönnum nefndarinnar.

Geir átti að vera fullkunnugt um að eitt og annað misjafnt færi fram þar sem fulltrúi hans Steingrímur Ari Arason sagði sig úr framkvæmdanefnd um einkavæðingu um það leyti sem umdeildar sölur ríkiseigna stóðu yfir.

Einhverra hluta vegna hefur Geir Haarde komist algerlega hjá því að svara efnislega fyrir vægast sagt verulega vafasöm vinnubrögð sem hann ætti að bera alla pólitíska ábyrgð á. Frjálslyndi flokkurinn mun beita sér fyrir því að fram fari rannsókn á einkavæðingu ríkiseigna ríkisstjórnar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks og að í eitt skipti fyrir öll verði komist til botns í þeirri spillingarsýki og sérgæsku sem ráðið hefur för. 



Nú hefur Fréttablaðið rifjað upp vægast sagt vafasama sölu á eign almennings á Íslenskum aðalverktökum til stjórnenda fyrirtækisins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×