Skoðun

Hvað er verið að leið­rétta?

Gabríel Ingimarsson, Sverrir Páll Einarsson, Alexander Hauksson, Ingvar Þóroddsson, María Ellen Steingrimsdóttir, Oddgeir Páll Georgsson og Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifa

Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að ríkisstjórnin lagði nýlega fram frumvarp um breytingu á útreikningum veiðigjalda. Ríkisstjórnin hefur talað um leiðréttingu, og að verið sé að innheimta sanngjarnt gjald fyrir aðgang að auðlindum þjóðarinnar. En hvað nákvæmlega er verið að leiðrétta? Er ekki bara verið að hækka einhver gjöld?

Margir hafa gagnrýnt að gjöldin séu „tvöfölduð“, og spurt af hverju þá ekki að þrefalda eða fjórfalda þau. Hver er réttlætingin fyrir þessari tilteknu breytingu?

Það er einmitt þetta sem leiðréttingin snýst um. Burtséð frá því hvað fólk telur vera réttmætan arf þjóðarinnar, þá ættum við öll að geta verið sammála um að útreikningur gjaldsins eigi ekki að vera í höndum þeirra sem greiða það.

Þannig hafa veiðigjöldin nefnilega verið reiknuð lengi. Þau taka mið af verðinu sem fæst fyrir fiskinn þegar hann er seldur til vinnslu, en hérna á Íslandi þá er það sala sem fer bara úr einum vasa í annan, þar sem iðulega eru það sömu aðilar sem eiga bæði kvótann og vinnslurnar.

Þetta væri svona eins og foreldrar þínir myndu selja þér húsið sitt á algjöru undirverði, og fasteignagjöldin sem þú greiddir tækju svo mið af verðinu sem þú borgaðir frekar en markaðsvirði eignarinnar. Frekar góður díll fyrir þig. Það gefur augaleið að það væri stórgallað kerfi og myndi búa til alls konar óheilbrigða hvata á húsnæðismarkaðinum. Það hefur einmitt verið staðan með veiðigjöldin þar til nú.

Þetta er þessi leiðrétting. Það er verið að leiðrétta hvernig þessi útreikningur fer fram þannig að þeir sem borgai gjöldin stýri í raun ekki hversu há þau eru að miklu leyti. Og þegar nýja, leiðrétta, reikniformúlan var notuð þá kom út sú hækkun á veiðigjöldunum sem raun bar vitni.

Við í Uppreisn stöndum með þeim mikla meirihluta þjóðarinnar sem styður þetta frumvarp og hvetjum atvinnuvegaráðherra, Hönnu Kötu Friðriksson, sem og ríkisstjórnina alla til dáða í þessu máli.

Höfundur sitja í stjórn Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

Hvað er verið að leið­rétta?

Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar

Sjá meira


×