Hagnaður Kaupþings 31,8 milljarðar króna 26. júlí 2006 10:01 KB banki
Hagnaður Kaupþings banka nam 13,0 milljörðum króna á öðrum ársfjóðungi en hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins nemur 31,8 milljörðum króna, sem er 7 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi er hins vegar 700 milljónum krónum minni en fyrir ári. Glitnir banki spáði að hagnaður Kaupþings á öðrum ársfjórðungi næmi rúmum rúmum 10,9 milljörðum króna en Landsbankinn spáði rúmum 9 milljarða króna hagnaði. Hagnaður á hlut á fyrstu sex mánuðum ársins var 47,9 krónur sem er 10 krónu hækkun á milli ára. Hagnaður á hlut á öðrum ársfjórðungi var 19,6 krónur en það er 1,30 krónum minna en fyrir ári. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að arðsemi eigin fjár á fyrri helmingi ársins hafi verið 36,2 prósent á ársgrundvelli. Þá námu hreinar vaxtatekjur bankans 24,9 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og er það 81,6 prósenta aukning á milli ára. Gengishagnaður nam 10,9 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins og er það 41,2 prósentum minna en á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur námu 66,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins en það er 43,3 prósenta aukning á milli ára. Heildareignir Kaupþings námu 3.552 milljörðum króna í júnílok og er það 11 prósenta aukning á föstu gengi frá áramótum en um 39,8 prósenta aukning í krónum. Þá nam arðsemi eigin fjár FIH, dótturfélags Kaupþings í Danmörku, 20,9 prósentum á ársgrundvelli á fyrri helmingi ársins. Þá kemur fram í tilkynningunni að Kaupþing hafi selt 24 prósenta eignarhlut sinn í VÍS eignarhaldsfélagi hf. til fjárfestingarfélagsins Exista í maí síðastliðnum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Bobbingastaður í bobba Viðskipti erlent Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Atvinnulíf Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Viðskipti innlent Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Ofurstinn flytur til Texas Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Skrifuðu undir viljayfirlýsingu um Coda-stöð í Ölfusi Loðnuvertíð eftir allt saman Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Play í sögulegri lægð eftir merkingu Kauphallar Bein útsending: Stærðin skiptir máli Rannsaka gögnin sem skera úr um hvort það verði loðnuvertíð Kaupin á TM: „Þetta mun einfaldlega ganga í gegn“ Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests „Tugir kúabúa gætu þurft að hætta“ „Það kæmi mér verulega á óvart ef þessi samruni yrði að veruleika“ Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Bætast í eigendahóp Markarinnar Þriðjungur flugvéla Play leigðar út í næstum þrjú ár Fjallað um strandveiðar á Alþingi í sérstakri umræðu Samruninn skili ekki aukinni samkeppni Níu milljarða tap en staðan styrkist Fetar ekki í fótspor forvera sinna hvað ÁTVR varðar „Það er verið að vernda stórkaupmenn“ Sjá meira