Tónlist

Styktartónleikar Ljóssins

Úrval tónlistarmanna efnir til tónleika til styktar starfsemi Ljóssins, sem eru endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Tónleikarnir verða laugardaginn 11. nóvember í Neskirkju. Meðal þeirra sem koma fram eru Unglingakór Snælandsskóla, Léttsveit kvennakórsins og Selkórinn, auk einsöngvara.

Aðgangseyrir er 2.500 krónur og er miðasala hafin í Ljósinu í Neskirkju og í síma 561 3770. Að auki verður hægt að kaupa miða við innganginn.



Ljósið er endurhæfingar -og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Yfirmarkmið Ljóssins er að efla lífsgæði á erfiðum tímum efla tengsl á milli manna, traust, hjálpsemi og aðstoð og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn hefur í för með sér. Krabbameinsgreindir, aðstandendur og allir þeir sem áhuga hafa á starfsemi Ljóssins hafa aðgang að endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðinni. Áhersla er lögð á að skapa hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem mannlegar áherslur eru í fyrirrúmi og fólk upplifir sig velkomið.

Ljósið hefur aðsetur í Neskirkju (gamla safnaðarheimilinu)

Yfirumsjón með starfinu hefur Erna Magnúsdóttir, iðjuþjálfi.

Hægt er að gerast styrktaraðili að Ljósinu með því að skrá nafn og kennitölu á netfangið [email protected]

Félagsgjöld eru 2.500, kr. á ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.