100 milljón króna villa rústuð 5. febrúar 2007 17:45
Hundrað milljón króna hús sem hæstaréttarlögmaður keypti fyrir rösku ári, var rifið í dag. Það vakti mikla athygli þegar fréttist af því að húsið að Sæbraut 13 á Seltjarnarnesi var keypt á um 100 milljónir króna, samkvæmt heimildum fréttastofu - til þess eins að rífa það. Þrjátíu ára gamalt og var í fínu standi í morgun en er nú rústir einar. Kaupandinn mun hafa verið Jón Halldórsson hæstaréttarlögmaður. Ekki náðist í hann í dag. Húsið var um 330 fermetrar með tvöföldum bílskúr og stórri útigeymslu. Hjónin Börkur Thorddsen tannlæknir og Adda Gerður Árnadóttir, fyrrum eigendur, hönnuðu húsið í samvinnu við Hilmar Þór Björnsson arkitekt og bjuggu í því frá upphafi. Hilmar sagði í viðtali við fréttastofu þegar húsið var selt að sér fyndist það fullkomið virðingarleysi gagnvart verðmætum, umhverfi og sögu að rífa húsið. Í samtali við fréttastofu í dag sagðist Hilmar óska þess að arkitekt nýs eiganda takist að skapa þarna hús, bæði að formi og efnisvali, sem falli vel að þeirri fallegu götu frá áttunda áratugnum sem Sæbrautin sé.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Fyrsta skrefið en heljarinnar barátta fram undan Innlent Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Innlent Samkomulag milli Úkraínu og Bandaríkjanna í höfn Erlent Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Innlent Ætla sjálf að velja blaðamenn í Hvíta húsið Erlent Reykjavík ekki ljót borg Innlent Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Innlent „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta skrefið en heljarinnar barátta fram undan Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Kjarasamningur kennara í höfn Engin röð á Læknavaktinni Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Bylgjan og FM957 liggja niðri Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Vilja styrkja viðgerðir á sögufrægum byggingum Kjarnorkukafbátur í Eyjafirði Konur á miðjum aldri þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna Verði gott fyrir lögreglu að vita hvar mörkin liggja Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Taldi drenginn myndu deyja yrði hann ekki umskorinn Verður á launum hjá stéttarfélagi og Alþingi út júní Leita að línunni Sólveig með sama rétt en segist ekki myndu nýta hann Viðkvæðið enn að kennarar yngri barna eigi minna skilið Vill að Ríkisendurskoðun rannsaki styrkjamálið Diljá Mist boðar til fundar Neyðarsjóður Ragnars Þórs og kennarar kallaðir í Karphúsið Samningur felldur: „Vissum að þetta stæði tæpt“ Sýknuð af ákæru fyrir að láta umskera son sinn Milljónirnar fari í neyðarsjóð fjölskyldunnar Sjá meira