Innlent

Hátt í þrettán stiga hiti á sumar­daginn fyrsta

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Það er kannski ekki alveg tímabært að taka stuttbuxurnar upp úr skúffunni en hlýtt verður á sumardaginn fyrsta gangi spár eftir.
Það er kannski ekki alveg tímabært að taka stuttbuxurnar upp úr skúffunni en hlýtt verður á sumardaginn fyrsta gangi spár eftir. Vísir/Vilhelm

Spáð er hátt í þrettán stiga hita á sumardaginn fyrsta. Á spákortinu má sjá sól víða um landið og tveggja stafa tölur vestan- og sunnantil.

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands að hæð við norðausturströnd Grænlands og lægðasvæði suður í hafi beini til okkar austlægum vindum, stinningskalda allra syðst, en annars hægum vindum.

Skýjað er að mestu austanlands og á Vestfjörðum og líkur á lítilsháttar éljum en yfirleitt léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Hiti yfir daginn í dag verður frá frostmarki og að níu stigum, mildast suðvestantil en víða næturfrost. Á morgun, þriðjudag og næstu daga þar á eftir er útlit fyrir keimlíkt en hlýnandi veður og fer líklega að rigna sunnantil þegar nær dregur helginni.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:

Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og skýjað með köflum og lítilsháttar él á Austurlandi, en bjart að mestu norðvestantil. Hiti 0 til 9 stig yfir daginn, mildast suðvestantil, en allvíða næturfrost.

Á miðvikudag:

Suðaustan 8-15 m/s suðvestantil, en annars hægari vindur. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en bjartviðri fyrir norðan. Heldur hlýnandi veður.

Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):

Suðaustan 8-15 m/s, en hægari norðan- og austanlands. Víða lítilsháttar væta, en léttskýjað norðaustantil. Hiti 4 til 13 stig að deginum, hlýjast vestantil.

Á föstudag og laugardag:

Suðaustanátt og dálítil rigning sunnan- og vestanlands, en annars þurrt að kalla. Áfram hlýtt í veðri.

Á sunnudag:

Útlit fyrir norðaustlæga átt með rigningu suðaustantil, en annars dálitlar skúrir eða él. Kólnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×