Mancini: Navarro er skræfa 7. mars 2007 16:02 Navarro hljóp undan leikmönnum Inter eins og lamb með úlfahjörð á hælunum AFP
Roberto Mancini, þjálfari Inter Milan, segir að David Navarro hjá Valencia sé skræfa. Þetta sé eina orðið sem hægt sé að nota til að lýsa manni sem hagar sér eins og Navarro gerði í gær. Til átaka kom eftir leik Valencia og Inter í Meistaradeildinni í gær. Navarro var á varamannabekknum þegar átökin brutust út en hljóp inn á völlinn og kýldi Nicolas Burdisso hjá Inter með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Navarro beið ekki boðanna eftir það og hljóp hræddur í burtu undan nokkrum leikmönnum Inter sem eltu hann reiðir um allan völl. "Ég sá ekki atvikið af því ég var fyrsti maðurinn til að ganga af velli eftir að flautað var af. Strákarnir sögðu mér svo frá því sem gerðist og nú er ég búinn að skoða myndbandsupptökur af látunum. Það eina sem ég get sagt um Navarro er að hann er skræfa. Það er ekki hægt að finna annað orð yfir mann sem gefur öðrum manni á kjaftinn og hleypur svo í burtu," sagði Mancini. Hinn nefbrotni Burdisso var á sama máli. "Ég átti í deilum við annan mann á vellinum og það sem Navarro gerði er ekki sérlega karlmannlegt. Ég var samt ánægður með það hvernig mínir menn þjöppuðu sér saman í kjölfarið og það er mesta synd að við höfum fallið úr keppni," sagði Burdisso.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport Dagskráin í dag: Liverpool-banarnir í Plymouth mæta til Manchester Sport Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Körfubolti Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Fótbolti Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Auðun tekur við Þrótti Vogum Messi var óánægður hjá PSG „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Hefur Amorim bætt Man United? Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Asensio skaut Villa áfram Albert kom við sögu í naumum sigri Bayern kom til baka gegn Stuttgart Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Ísak Bergmann skoraði í leik sem mátti ekki tapast en tapaðist samt Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Daði Berg frá Víkingi til Vestra Gera grín að Jürgen Klopp Víkingar skipta um gír Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Sjá meira