Rooney tryggði United sigur á elleftu stundu 24. apríl 2007 20:32 Wayne Rooney stal senunni á Old Trafford í kvöld AFP
Manchester United lagði AC Milan 3-2 í frábærum fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Ítalska liðið komst í 2-1 í fyrri hálfleik en Wayne Rooney tryggði enska liðinu dýrmætan sigur með marki í uppbótartíma. Manchester United átti sannkallaða draumabyrjun í leiknum þegar Cristiano Ronaldo kom liðinu yfir á fimmtu mínútu með laglegum skalla sem Dida markvörður sló í netið. Heimamenn virtust ætla að taka öll völd á vellinum eftir það, en Milan-liðið sýndi sína alkunnu seiglu og náði að komast yfir fyrir hlé. Það var brasilíski snillingurinn Kaka sem jafnaði leikinn á 22. mínútu og var svo aftur á ferðinni á þeirri 37. Útlitið því orðið ansi dökkt fyrir heimamenn, þar sem síðari leikurinn fer fram á San Siro í Mílanó. Manchester United kom ákveðið til síðari hálfleiksins og Wayne Rooney jafnaði leikinn verðskuldað á 59. mínútu. Greinilegt var að ítalska liðið ætlaði að reyna að halda jöfnu eftir þetta og það hefði tekist ef ekki hefði verið fyrir glæsilega skyndisókn United-manna þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Ryan Giggs átti þá góða sendingu inn fyrir vörnina á Wayne Rooney, sem hamraði boltann á nærstöngina og skoraði hjá Dida. Niðurstaðan því gríðarlega mikilvægur sigur fyrir enska liðið, en ljóst er að þetta einvígi er hvergi nærri búið og verður síðari leikurinn mjög áhugaverður í Mílanó 2. maí.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Körfubolti Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Liverpool-banarnir í Plymouth mæta til Manchester Sport Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Fótbolti „Óafsakanlegt hvernig við mættum til leiks“ Körfubolti „Tilefnið stórt og sterkt að landa sigri“ Körfubolti Asensio skaut Villa áfram Enski boltinn Embiid frá út leiktíðina Körfubolti Albert kom við sögu í naumum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Asensio skaut Villa áfram Albert kom við sögu í naumum sigri Bayern kom til baka gegn Stuttgart Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Ísak Bergmann skoraði í leik sem mátti ekki tapast en tapaðist samt Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Daði Berg frá Víkingi til Vestra Gera grín að Jürgen Klopp Víkingar skipta um gír Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Sjá meira