Árás bandarískrar herþyrlu veldur dauða íraskra barna 8. maí 2007 22:02 MYND/AFP
Árás bandarískrar herþyrlu á grunaða uppreisnarmenn varð til þess að fjöldi barna lét lífið í dag. Árásin átti sér stað í Diyala héraði norðaustur af Bagdad. Þetta fullyrtu íraskar öryggissveitir. Talsmaður Bandaríkjahers sagðist geta staðfest að það hefðu verið þyrlur á ferli á svæðinu en hann gat ekki sagt neitt annað um málið. Svæðið er nálægt landamærunum við Íran. Lögreglumaður sem sá atvikið sagði að það hefði verið skotið á þyrluna af jörðu. Skóli á svæðinu hefði síðan orðið fyrir skotum þegar þyrlan svaraði árásinni. Hann sagði jafnframt að sex börn hefðu látið lífið og að sex hefðu særst. Það hefur þó ekki enn verið staðfest. Chris Garver, talsmaður Bandaríkjahers, sagði að þeir tækju allar svona fréttir alvarlega og því myndu þeir rannsaka málið. Ofbeldi hefur aukist á svæðinu undanfarnar vikur. Á sunnudaginn létust sex hermenn og rússneskur blaðamaður sem var með þeim í för þegar þeir keyrðu yfir jarðsprengju.
Erlent Mest lesið Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Innlent Samkomulag milli Úkraínu og Bandaríkjanna í höfn Erlent Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Innlent Reykjavík ekki ljót borg Innlent Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Innlent Ætla sjálf að velja blaðamenn í Hvíta húsið Erlent „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Innlent „Snarklikkað fólk“ sem hafi fengið smá lexíu Innlent Fleiri fréttir Ætla sjálf að velja blaðamenn í Hvíta húsið Samkomulag milli Úkraínu og Bandaríkjanna í höfn Litlu mátti muna á flugbrautinni Eykur fjárútlát í herinn til muna vegna „hættulegra nýrra tíma“ Ríkisstarfsmenn ráðþrota gagnvart furðulegri fyrirskipun Musk Nær útilokað að smástirni sem fylgst var með rekist á jörðina Fjórir látnir eftir að brú hrundi í Suður-Kóreu Freistar Bandaríkjanna með gulli og grænum skógum Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Valdi dauða með aftökusveit Segir Selenskí á leið til Washington Höktir í stuðningi til Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Sjá meira