MySpace eyðir vefsíðum kynferðisafbrotamanna Jónas Haraldsson og Steinunn Sigurðardóttir skrifar 16. maí 2007 10:35 Vefsíða MySpace er gríðarlega vinsæl úti um allan heim og ekki síður hér á Íslandi. MYND/AFP
Stjórnendur tengslavefsins MySpace sögðu í gær að þeir hefðu borið kennsl á og eytt vefsíðum þúsunda dæmdra kynferðisafbrotamanna. Þetta gera eigendur MySpace til þess að vernda yngri notendur. MySpace tilkynnti um þetta aðeins degi eftir að átta bandarískir saksóknarar kröfðust þess að tengslavefurinn léti af hendi upplýsingar um vefsíður kynferðisglæpamanna og eyddi þeim síðan. Samtals eru 175 milljón manns með vefsíðu á MySpace. Öryggisfulltrúi MySpace, Hemanshu Nigam, sagði við fjölmiðla „Við umberum ekki dæmda kynferðisafbrotamenn á tengslavef okkar." Hann sagði jafnframt að MySpace mætti lögum samkvæmt ekki láta upplýsingar af þessu tagi af hendi. Nokkur mál hafa komið upp þar sem kynferðisglæpamenn hafa komist í samband við ungt fólk í gegnum MySpace. Fjölskyldur nokkurra ungra stúlkna sem urðu fyrir árásum í kjölfarið fóru í mál við tengslavefinn í janúar á þessu ári fyrir að vernda unga notendur sína ekki betur.
Erlent Mest lesið Samkomulag milli Úkraínu og Bandaríkjanna í höfn Erlent „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Innlent „Snarklikkað fólk“ sem hafi fengið smá lexíu Innlent Milljónirnar fari í neyðarsjóð fjölskyldunnar Innlent Diljá Mist boðar til fundar Innlent Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Innlent „Inga gripið til orðfæris í garð blaðamanna sem engum stjórnmálamanni er sæmandi“ Innlent Freistar Bandaríkjanna með gulli og grænum skógum Erlent Ríkisstarfsmenn ráðþrota gagnvart furðulegri fyrirskipun Musk Erlent Litlu mátti muna á flugbrautinni Erlent Fleiri fréttir Ætla sjálf að velja blaðamenn í Hvíta húsið Samkomulag milli Úkraínu og Bandaríkjanna í höfn Litlu mátti muna á flugbrautinni Eykur fjárútlát í herinn til muna vegna „hættulegra nýrra tíma“ Ríkisstarfsmenn ráðþrota gagnvart furðulegri fyrirskipun Musk Nær útilokað að smástirni sem fylgst var með rekist á jörðina Fjórir látnir eftir að brú hrundi í Suður-Kóreu Freistar Bandaríkjanna með gulli og grænum skógum Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Valdi dauða með aftökusveit Segir Selenskí á leið til Washington Höktir í stuðningi til Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Sjá meira