Skoðun

Okkar stefna í framkvæmd: Að standa með fólkinu

Svandís Svavarsdóttir skrifar
:Magnaðir eru tímarnir fyrir margra hluta sakir. Bankahrun og kollsteypur fjölskyldna og fyrirtækja. Við stjórnvölinn er svo ríkisstjórn sem hefur glatað öllu trausti kjósenda ef marka má skoðanakannanir. Stjórnarflokkarnir bera ábyrgðina, þeir báðir, ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn. Hvað hyggst ríkisstjórnin fyrir?

Frést hefur af flötum niðurskurði, 10% á einum stað, 20% í utanríkisráðuneytinu þar sem Varnarmálastofnun er á sínum stað en skorin er niður þróunaraðstoð. Hver ákveður prósentin 10? Fjármálaráðherrann? Ráðuneytisstjórinn sem liggur undir ámæli fyrir að nýta sér innherjaupplýsingar í eigin þágu? Hvaðan kemur krafan? Frá fjárlaganefndinni, þinginu þar sem fjárveitingarvaldið er? Hver er stefnan? Á hverju eigum við von, þjóðin, sem er að reyna að botna í ástandinu? Þjóðin sem núna horfir á Egil, mætir á Austurvöll, hrópar úti, ber í borðið heima, fyllist reiði og vonleysi á víxl. Stundum meira að segja heift.

Hver er meginstefna ríkisstjórnarinnar við þessar aðstæður? Reykjavíkurborg hefur sammælst, þverpólitískt, um aðgerðaáætlun þar sem þrjár meginreglur voru kynntar strax í byrjun október.

1. Við stöndum vörð um grunnþjónustuna.

2. Við hækkum ekki gjaldskrárnar.

3. Við verjum störfin.

Þessar áherslur eru félagslegar, bera þess merki að vera lagðar fram í samstöðu, með aðild Vinstri grænna og Samfylkingar. Þetta eru félagslegar áherslur sem allir hafa fallist á. Þótt við séum í minnihluta. En framkvæmd stefnunnar væri að sjálfsögðu í öruggari í höndum meirihluta sem við ættum aðild að. En samt sýnir þessi niðurstaða árangur, mikilvægan árangur. Þessar áherslur snúast um að reyna að tryggja að borgaryfirvöld standi með borgarbúum.

Aðgerðaráætlun borgarinnar snýst um hagstjórn, um að standa með borgarbúum, um að verjast atvinnuleysi eins og unnt er, um að standa með starfsfólkinu. Með hverjum stendur ríkisstjórn Íslands þegar enn einn blaðamannafundurinn er haldinn og nú um atvinnumál á sama tíma og verið er að reka fólk frá Ríkisútvarpinu og ríkisstarfsmenn bíða milli vonar og ótta?

Þverpólitísk aðgerðaráætlun borgarstjórnar var hugsuð til þess að draga úr óvissu. Að starfsfólk borgarinnar vissi á hverju það ætti von en ekki síður borgarbúar allir. Grunnþjónustan verður varin, gjaldskrárnar ekki hækkaðar og starfsfólkið heldur störfunum. Á óvissutímum þarf að draga úr óvissu. Ríkisstjórn Íslands hefur brugðist á öllum sviðum og þar er einna alvarlegast að halda almenningi óupplýstum, hræddum og efins. Traustið er farið og verður ekki endurnýjað nema með kosningum og nýju umboði.

Höfundur er borgarfulltrúi Vinstri grænna.

 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×