NBA í nótt: Orlando enn taplaust Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. nóvember 2009 09:02 Dwight Howard, leikmaður Orlando. Nordic Photos / Getty Images
Orlando Magic vann í nótt góðan sigur á Toronto Raptors, 126-116, í NBA-deildinni í nótt en Orlando setti alls niður sautján þrista í leiknum. Jameer Nelson var með 30 stig í leiknum og JJ redick skoraði alls 27 stig. Báðir settu niður fimm þrista í leiknum, sem og Ryan Anderson sem skoraði alls 20 stig. Dwight Howard var með 24 stig og ellefu fráköst. Orlando vann alla átta leiki sína á undirbúningstímabilinu og hefur unnið alla þrjá leiki sína í deildinni síðan hún hófst í síðustu viku. Chris Bosh var stigahæstur hjá Toronto með 35 stig og sextán fráköst og Andrea Bargnani var með 26 stig. Hedo Turkoglu, fyrrum leikmaður Orlando, skoraði nítján stig fyrir sitt nýja félag. Vince Carter skoraði sextán stig á fyrstu fimmtán mínútum leiksins en þá fór hann af velli eftir að hann sneri sig á ökkla. Boston er einnig taplaust en liðið vann New Orleans í nótt, 97-87. Paul Pierce var með 27 stig en Chris Paul skoraði 22 stig og var með átta stoðsendingar fyrir New Orleans. Miami vann Chicago, 95-87. Dwyane Wade skoraði 25 stig og hefur nú alls skorað 10.005 stig á sínum ferli. Udonis Haslem bætti við nítján stigum og tók ellefu fráköst þó svo að hann hafi ekki verið í byrjunarliðinu. Miami er taplaust enn taplaust á tímabilinu. Denver vann Memphis, 133-123, þar sem Carmelo Anthony skoraði 42 stig fyrir Denver. OJ Mayo skoraði 40 stig fyrir Memphis. Phoenix vann Minnesota, 120-112. Channing Frye setti niður þrjá þrista í leiknum og skoraði 25 stig. Jason Richardson skoraði 23 stig fyrir Phoenix sem er enn taplaust á tímabilinu. Grant Hill var með 23 stig, Amare Stoudemire nítján og Steve Nash fjórtán stig og fjórtán stoðsendingar. LA Lakers vann Atlanta, 118-110. Kobe Bryant fór á kostum og skoraði 41 stig og tók átta fráköst. Andrew Bynum var með 21 stig. Joe Johnson skoraði 27 stig fyrir Atlanta, þar af átján í fyrsta leikhluta.
NBA Mest lesið Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Fær vonandi stórbrotinn endi á stórbrotnum ferli“ Sport Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Sjá meira