Nýtt nafn verður skrifað á deildabikar kvenna í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2009 11:00 Rakel Hönnudóttir tryggði Þór/KA sæti í sínum fyrsta úrslitaleik í deildabikar kvenna. Mynd/Auðunn
Það varð ljóst eftir undanúrslitaleiki Lengjubikars kvenna í gær að nýtt nafn verður skrifað á bikarinn í deildabikar kvenna en Stjarnan og Þór/KA tryggðu sér þá sæti í úrslitaleiknum sem fram fer í Kórnum á laugardaginn kemur. Þór/KA komst í úrslitaleikinn eftir 1-0 sigur á Breiðabliki í Boganum en Stjörnustúlkur þurftu vítaspyrnukeppni til þess að slá út Íslandsmeistara Vals. Þetta verður í fyrsta sinn síðan 1999 sem Valur verður ekki í úrslitaleiknum en Hlíðarendaliðið var búið að spila níu úrslitaleiki í röð í deildabikar kvenna. Fjögur félög hafa náð því að verða deildabikarmeistarar. Breiðablik hefur unnið titilinn fimm sinnum, KR vann hann í fjórða sinn í fyrra, Valur hefur unnið hann þrisvar og ÍBV vann hann í eina skiptið árið 2004. Þetta verður fyrstu úrslitaleikur norðanstelpna í deildabikarnum en Stjarnan hefur einu sinni áður spilað til úrslita. Það var árið 1999 þegar liðið tapaði 0-4 á móti KR. Þór/KA-liðið hefur reyndar orðið deildabikarmeistari undanfarin þrjú ár en liðið spilaði þá í b-deildinni. Þó/KA getur því orðið fyrsta félagið sem hefur unnið bæði A og B-deild deildabikars kvenna. Úrslitaleikir í deildabikar kvenna frá upphafi: 2009 Stjarnan-Þór/KA ?-?2008 KR-Valur 4-02007 KR-Valur 1-22006 Valur-Breiðablik 1-22005 KR-Valur 1-62004 ÍBV-Valur 3-12003 Valur-Breiðablik 4-12002 KR-Valur 4-02001 Breiðablik-Valur 1-1 (4-2 í vítakeppni)2000 KR-Valur 8-21999 KR-Stjarnan 4-01998 Breiðablik-Valur 3-21997 Breiðablik-KR 2-01996 Breiðablik-Valur 4-2
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Leik lokið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Handbolti Fleiri fréttir Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Sjá meira