Michael Redd úr leik hjá Milwaukee 25. janúar 2009 22:38 Michael Redd NordicPhotos/GettyImages
Ólympíufarinn Michael Redd hjá Milwaukee Bucks spilar ekki meira með liði sínu á leiktíðinni eftir að skoðun í dag leiddi í ljós að skyttan örvhenta er með slitið liðband í hné. Redd var í gullliði Bandaríkjanna í Pekiing í sumar og var farinn að finna sitt gamla form eftir að hafa byrjað rólega í haust. Redd var með rúm 25 stig að meðaltali í leik í janúar og 21 stig á leiktíðinni. Redd er ein besta hreina skytta Bandaríkjanna en hefur verið í nokkru basli með meiðsli síðustu ár. Hann spilaði 72 af 82 leikjum á síðustu leiktíð en missti úr 29 leiki á tímabilinu þar á undan. Redd hefur nú lokið keppni í ár eftir aðeins 33 leiki, því hann missti úr 14 leiki fyrr í vetur vegna ökklameiðsla. Hann er ekki eini leikmaður Milwaukee sem hefur átt í meiðslum, því ástralski miðherjinn Andrew Bogut hefur misst úr 13 leiki vegna bakmeiðsla. Árangur Milwaukee (22 sigrar - 25 töp) hefur þrátt fyrir þessi áföll verið vonum framar undir stjórn nýja þjálfarans Scott Skiles í vetur, en ljóst er að þessi alvarlegu meiðsli Redd munu reynast liðinu þungur biti að kyngja fram á næsta haust.
NBA Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Enski boltinn Fleiri fréttir „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Sjá meira