Framkvæmdin orðin flóknari 20. ágúst 2010 00:45
Ríkisstjórnin í Sviss vill endurnýja tvíhliða samninga ríkisins við Evrópusambandið. Þeir eru orðnir tíu ára gamlir og renna út innan skamms. Doris Leuthard, forseti Sviss, viðurkennir að það verði erfitt að semja við Evrópusambandið um þetta. Bæði hafi Evrópusambandið stækkað mjög þann áratug sem liðinn er síðan tvíhliðasamningurinn var gerður og svo hafi Lissabon-sáttmáli Evrópusambandsins, sem tók gildi á síðasta ári, breytt ýmsu. Auk þess er flókið mál að fara í gegnum tuttugu stóra samninga og hundrað minni samninga sem í gildi eru milli Sviss og Evrópusambandsins, en með hverju árinu hefur framkvæmd og utanumhald allra þessara samninga orðið æ flóknara. Leuthard minnir hins vegar á að Sviss er Evrópusambandinu mikilvægt. Evrópusambandsríkin eiga, næst á eftir Bandaríkjunum, meiri viðskipti við Sviss en öll önnur ríki heims. „Þess vegna megum við af heilbrigðu sjálfsöryggi reikna með hagkvæmri niðurstöðu," segir hún.- gb
Fréttir Mest lesið Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Erlent Valdi dauða með aftökusveit Erlent Ofbýður hvað Reykjavík er ljót Innlent „Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Innlent Segir Selenskí á leið til Washington Erlent Myndband af ránstilrauninni: Ýtti ræningja með byssu burt og ýtti á neyðarhnappinn Innlent „Snarklikkað fólk“ sem hafi fengið smá lexíu Innlent Husky réðst á hreindýr, sem þurfti að aflífa Innlent Drónaframleiðsla, sprengjuleit og innviðauppbygging meðal þess sem Ísland styrkir Innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Fréttir Fleiri fréttir Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Valdi dauða með aftökusveit Segir Selenskí á leið til Washington Höktir í stuðningi til Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Sjá meira