

Jón Gnarr: Konur
Karlar og konur hlæja misjafnlega mikið og af misjöfnum hlutum. Það er einstaklingsbundið en líka kynbundið. Erlendar rannsóknir sýna að karlmenn virðast hafa mest gaman af klámbröndurum. Konur aftur á móti hafa meira gaman af orðaleikjagríni eða svokölluðum "Clever-humor". Það gefur vísbendingar um að konur séu klárari en karlar. Karlar og konur eru ólík á margan hátt, ekki bara líkamlegan. Bæði kynin hafa sína kosti og sína galla. Allir karlmenn eru eins og Homer Simpson og allar konur eru eins og Marge. Það er bara þannig.
Allir vita að öllum konum finnst gaman að taka til. Við þurfum konur í það mikla tiltektarstarf sem bíður okkar í borginni. Samfélag okkar er í molum eftir mörg ár af frekju og yfirgangi. Viðskiptabólan blés upp af frekju, sprakk og skildi eftir sig sviðna jörð og slettur útum allt. Það er ekki gott. Stjórnmál eru eins og keppni í frekju þar sem hinn frekasti vinnur með því að vaða yfir alla aðra með yfirgangi og þreytandi blaðri. Konur hafa verið í minnihluta á báðum þessum sviðum. En nú þörfnumst við þeirra, ekki bara í tiltektina heldur líka í uppbygginguna. Við hvetjum konur til að vera með í Besta flokknum. Öllum konum finnst gaman að punta sig og gera fínt í kringum sig. Nú er tækifærið! Karlmenn kunna ekki að punta. En þeir eru góðir í að bera og stilla upp ef einhver kona leiðbeinir þeim.
Besti flokkurinn vill sjá frekju víkja fyrir húmor og gjafmildi. Endurfæðing Íslensks samfélags verður engin án kvenna. Við viljum reka þessa borg eins og gott hjónaband þar sem bæði hjónin eru glöð. Því kynnum við nú nýjan og kynbættan framboðslista. Við fjölgum konum á listanum. Margar konur vilja vera í Besta flokknum en ekki á listanum og hlakkar til að vinna fyrir Besta flokkinn. Konur eru skemmtilegar, detta skemmtilegir hlutir í hug og gera skemmtilegt. Þær eru góðar í að hafa áhyggjur og gera lista yfir hluti sem þarf að gera. Þær klæða sig líka yfirleitt á fjölbreyttari og skemmtilegri hátt en karlar. Við viljum sýna í verki virðingu okkar fyrir Íslenskum konum. Konur eru helmingur landsmanna og það er okkar trú að hér væri mikið betra að vera ef konur stjórnuðu meiru og hefðu fengið meira kredit fyrir það sem gott hefur verið gert hér á þessu landi. Þar hefur frekjan oftar en ekki tekið völdin og heiðrað sjálfa sig á kostnað hins auðmjúka.
Á Arnarhóli stendur styttan af Ingólfi Arnarsyni, til heiðurs því fólki sem fyrst nam hér land. Það voru bæði menn og konur. Ef engar konur hefðu verið með í för værum við einfaldlega ekki til. Það er því krafa Besta flokksins að hrinda í framkvæmd þeim hugmyndum sem hafa verið uppi, en ekki náð fram, að við hlið styttunnar af Ingólfi Arnarsyni rísi önnur og jafnstór stytta af Hallveigu Fróðadóttur eiginkonu hans.
Skoðun

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar