Jón Ólafsson og Mike Tyson bestu vinir [email protected] skrifar 3. júlí 2010 06:30 Jón og hnefaleikakappinn Mike Tyson mynduðu góðan vinskap á kvikmyndahátíðinni í Kazakstan þar sem þeir voru báðir gestir. „
Tyson er ljúfur sem lamb,“ segir athafnamaðurinn og vatnskóngurinn Jón Ólafsson. Jón er nýkominn til Íslands eftir að hafa verið einn af alþjóðlegum gestum kvikmyndahátíðar í Kazakstan. Þar var hann í hóp með Hollywood-leikkonunni Hillary Swank, sænska leikaranum og líkamsræktarfrömuðinum Dolph Lundgren, kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein og hnefaleikakappanum Mike Tyson. Tyson og Jón urðu hinir mestu mátar meðan á dvölinni í Kazakstan stóð. „Tyson er stórvinur minn,“ segir Jón. „Ég var eiginlega settur í það að sjá um hann, enda ekki hver sem er sem ræður við kappann.“ Leikstjórinn Timur Bekmambetov, sem leikstýrði meðal annars kvikmyndunum NightWatch og Wanted, er upphafsmaður hátíðarinnar, en hann er góður vinur Jóns. „Timur bauð mér að koma á hátíðina og það var alveg svakalega gaman,“ segir Jón. „Við vorum þarna þrír boðsgestir sem vorum saman. Þeir vildu sem sagt vera með einn kvikmyndaframleiðanda, einn leikara og einn frumkvöðul, sem var ég. Þetta var bara alveg frábært,“ Jón bætir við að hann eigi heimboð inni hjá Tyson á heimili hans í Las Vegas. „Ég stefni á að heimsækja hann innan skamms.“ Hnefaleikakappinn var á hátíðinni til að kynna heimildarmyndina Tyson sem er um hann sjálfan en myndin kom út 2008. Jón ber myndinni vel söguna og segir hana lýsa Mike Tyson sem karakter. „Ég sá hana fyrst á Sundance hátíðinni í fyrra og hún er alveg mögnuð. Mæli hiklaust með henni,“ segir hann. Kvikmyndahátíðin, sem var haldin í fyrsta skipti í ár, ber nafnið Astana International Action Film Festival og er meðal annars sögð vera haldin til að varpa nýju ljósi á íbúa og menningu Kazakstans eftir að kvikmyndin Borat var talin afskræma ímynd landsins fyrir alla heimsbyggðina. Dolph Lundgren var þarna sem kynnir og Hillary Swank tók á móti verðlaunum. Fleiri stórlaxar í Hollywood voru einnig á svæðinu og fengu að kynnast landi og þjóð, enda Kazakstanar mjög stoltir af menningu sinni og urðu mjög fúlir þegar Borat kvikmyndin kom út. Þetta var í fyrsta sinn sem Jón kemur til Kazakstan og vitaskuld tók hann Icelandic Glacial vatnið með sér en hann segist sjaldan skilja það við sig. „Ég mun klárlega fara aftur. Landið er mjög fallegt og höfuðborgin Astana, þar sem hátíðin var haldin, er frábær.“
Innlent Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Fleiri fréttir Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision Sjá meira