Ósigrandi minnipokamenn 17. júní 2010 07:00 Misgóður leikarahópur The Losers tekur sig ekki of alvarlega og rís því undir göllunum.
Bíó HHH The Losers Aðalhlutverk: Jeffrey Dean Morgan, Zoe Saldana, Chris Evans Leikstjóri: Sylvain White The Losers er hrá, sveitt og á köflum alveg hreint ferlega töff hasarmynd. Gallalaus er hún þó ekki og líður einna helst fyrir lapþunnt handrit, frekar slappa og klisjukennda sögu og leikarahóp sem er vægast sagt misgóður. Myndin rís hins vegar undir göllunum, aðallega vegna þess að hún tekur sig aldrei alvarlega og þykist ekki vera neitt annað en það sem hún nákvæmlega er. Spennumynd með sprengingum, byssubardögum og slagsmálum og þeir sem fara sjálfviljugir á myndir eins og The Losers eru að sækjast eftir einmitt þessu án þess að hafa of miklar áhyggjur af umgjörðinni eða vitrænni framvindu sögunnar. The Losers er byggð á samnefndri myndasögu um harðsnúna sérsveit hermanna sem tekur að sér ýmis vafasöm leyniverkefni en segir CIA stríð á hendur eftir að stofnunin snýst gegn þessum vösku útsendurum sínum. Í bíó er nánast það sama í gangi. Voðalega vondur og dularfullur skúrkur, Max að nafni, sendir lúserana í drápsferð á vægast sagt vafasömum forsendum og ætlar sér svo að kála þeim þegar þeir hafa lokið verki sínu. Okkar menn sleppa þó með skrekkinn en eru taldir af, og til þess að bæta gráu ofan á svart sitja þeir fastir í Bólivíu, félitlir og ráðalausir, en láta sig dreyma um að komast aftur heim til Bandaríkjanna og jafna metin við Max. Skýtur þá upp kollinum ferlega flott hasargella með fullar hendur fjár sem vill endilega flytja þá heim og fjármagna draum þeirra um að drepa Max. Þá byrjar fjörið fyrir alvöru. Lúserarnir, sem eru einhvers konar sambland af genginu og Mission Impossible og 12 ruddum, nota tölvutækni og vélbyssur til þess að klekkja á Max. En auðvitað er víða setið á svikráðum og engum treystandi. Jeffrey Dean Morgan leikur foringja lúseranna og er jafn stirður, ótöff og ósannfærandi og hann var frábær í hlutverki Grínistans í The Watchmen. Hinn jafnan ofmetni leikari Jason Patric mætir nokkuð öflugur til leiks í hlutverki Max þar sem hann skammast sín ekkert fyrir að ofleika ýktan skúrkinn. Chris Evans er skemmtilegasti leikarinn í hópi lúseranna og sýnir fín tilþrif í gríninu en að öðru leyti á Zoe Saldana (Avatar, Star Trek) þessa mynd skuldlaust. Hún fer hamförum í hlutverki ofurskutlunnar Aisha sem er jafningi lúseranna í vopnaburði og slagsmálum en auðvitað miklu kynþokkafyllri. Bardagaatriðin eru flest fín þar sem mikið er gert út á hraðar klippingar og það eru fyrst og fremst töffarastælar með tökuvélina sem lyfta myndinni. Til dæmis er óborganlegt að sjá glitta í rassinn á Saldana í fljúgandi spegilbroti í miðri byssukúluhríð. Ógleymanlegt atriði í mynd sem líður annars fljótt úr minni. Þórarinn Þórarinsson Niðurstaða: Töff hasarmynd sem fer langt á flottri gellu og smart atriðum en líður fyrir lélegt handrit og ójafnan hóp leikara.
Gagnrýni Lífið Menning Mest lesið Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Lífið Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lífið Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Lífið Setja markið á 29. sætið Lífið Vinur Patriks kom upp um hann Lífið Gurrý selur slotið Lífið Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Lífið Ekkert gefið eftir í elegansinum Tíska og hönnun Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Lífið Einar og Milla eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir Vinur Patriks kom upp um hann Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Gurrý selur slotið Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Minnast Árna Grétars á maraþon-minningartónleikum Setja markið á 29. sætið Einar og Milla eiga von á barni Ísland í næstneðsta sæti veðbankanna Krakkatían: Toy Story, risaeðlur og spænska Lærði mikið af öllu hatrinu Lifðu af tvö flugslys sama daginn á Mosfellsheiði Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Myndaveisla: Spennustigið óbærilegt þegar VÆB unnu Söngvakeppnina VÆB keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Uppselt á Noruh Jones á nokkrum mínútum Bryan Adams seldi upp á hálftíma Laufey ein af konum ársins hjá Time Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Margt breyst í leiðsöguferðum á Breiðamerkurjökli eftir banaslysið Sjá meira