
Ögmundur Jónasson: Kallað eftir rökum
Þessir aðilar eiga það flestir sammerkt að vitna óspart hver í annan og gera þannig fullyrðingu eins að eigin rökstuðningi, án þess þó að fullyrðingin hafi verið annað en getgátur einar.
900 milljarðar!Þó eru á þessu undantekningar. Tölfræðingur nokkur gaf sér þannig að hagvöxtur á síðasta ári hefði orðið þremur prósentustigum meiri en raunin varð, ef gengið hefði verið frá Icesave án nokkurra tafa. Þetta út af fyrir sig er sérkennilegur líkindareikningur því þetta hefði þýtt að Ísland hefði búið við meiri hagvöxt en flest grannríki okkar, sem varla getur talist líklegt í kjölfar efnahagshrunsins. Hvað um það. Fræðingurinn reiknaði þennan hagvaxtarávinning inn í ókominn tíma og núvirti síðan með þeirri niðurstöðu að Ísland væri að tapa 75 milljörðum á mánuði á Icesave-töfinni, alls 900 milljörðum á heilu ári. Ég verð að játa að þessar reikningsaðferðir eru ofar mínum skilningi. Með því að gefa sér sambærilegar forsendur mætti finna út að einstaklingur sem yrði af 10 þúsund króna mánaðarlegum greiðslum í eitt ár (og sá tekjustraumur yrði reiknaður inn í ókominn tíma og núvirtur með sama hætti) myndi tapa 200 þúsund krónum á mánuði!
ASÍ sér bara stóriðjuSíðan eru það útreikningar Alþýðusambands Íslands sem fann það út að Icesave-töfin kostaði 50 milljarða á ári. Að sögn Fréttablaðsins reiknaði hagdeild sambandsins þetta út fyrir blaðið. Í umfjöllun þess kemur fram að forsendurnar eru fyrst og fremst bundnar stóriðju, frestun á álveri í Helguvík og endurnýjun í Straumsvík. Ég tel að hér skorti tvennt. Í fyrsta lagi að skýra betur hvernig töf á Icesave valdi því að ekki er hægt að endurnýja búnað í Straumsvík. Sama gildir um Helguvík, þar er það óvissa um orkuöflun sem öðru fremur veldur töfum. Í öðru lagi þyrfti að fá útlistanir Alþýðusambandsins á áhrifum þessara stóriðjuframkvæmda eftir að uppbyggingu lýkur. Slíkum langtímaáhrifum erum við nú að kynnast eftir framkvæmdirnar við Kárahnjúka og á Reyðarfirði, sem höfðu í för með sér innflutning á vinnuafli og víðtæk ruðningsáhrif en ekki þá varanlegu atvinnusköpun sem vænst var - af margra hálfu. ASÍ, samkvæmt frásögn Fréttablaðsins, tengir Icesave-töfina fyrst og fremst áhrifum á stóriðju og í tengslum við hana atvinnustiginu, og reiknar kostnaðinn í því samhengi. Þarna er einnig vísað í óskilgreinda óvissu sem valdið hafi „erfiðleikum í fjármögnun, og nægir þar að vísa til orða seðlabankastjóra um áhrif á höft og gengið" (Fréttablaðið 29. mars). Hvergi hef ég séð seðlabankastjóra færa rök fyrir þessum staðhæfingum sínum! Er ekki staðreyndin sú að íslensk orkufyrirtæki eru yfirskuldsett og þurfa að gefa sér tíma til að borga niður skuldir og þannig endurnýja traust fjárfesta? Er þetta ekki vandinn fremur en töf á Icesave?
Þegar staðhæfing verður að sannleikaÍ framhaldinu tekur ritstjóri Fréttablaðsins upp þráðinn og vísar í málflutning ASÍ og fleiri. Yfirlýsingar þessara aðila verða að sannleika í leiðaraskrifum Ólafs Þ. Stephensen ritstjóra. Margir þessara álitsgjafa sem hann og aðrir vísa í, halda því staðfastlega fram að Icesave-töfin hafi dregið úr trúverðugleika okkar á erlendum lánamörkuðum. Þetta held ég að hljóti að vera rangt. Skal ég þó játa að það byggi ég á líkindum. Og líkindin eru þessi: Ríki getur varla orðið trúverðugra með því að skuldsetja sig yfir þau mörk sem meira að segja Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lýst vafasöm! Það sem er hins vegar handfast við töfina á frágangi Icesave er að skuldbindingar ríkissjóðs koma til með að verða miklu minni en á horfðist.
Bretar og Hollendingar vilja enn að íslenskir skattgreiðendur borgi og það með vöxtum en nú samkvæmt því sem þeir kalla „cost of funding", þ.e. fyrir útlagðan kostnað þeirra sjálfra. Þetta þýðir að ekki á lengur beinlínis að græða á Íslendingum! Dregur þessi breyting úr trúverðugleika Íslands? Hvað skyldi háskólaprófessorum, hagdeild ASÍ, stjórnmálamönnum, núverandi og fyrrverandi og ritstjóra Fréttablaðsins þykja um það? Fróðlegt væri að heyra viðhorfin og þá ekki síður heyra rökin.
Höfundur er þingmaður.
Skoðun

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar