Skoðun

Uppköst og dramatík

Kolbrún Baldursdóttir skrifar
Uppköst og dramatík eru gjarnan þema unglingasamkvæma þar sem áfengi er haft um hönd. Ósjaldan gerist það að unglingur sem hefur drukkið meira en hann ræður við, verður veikur og þarf að kasta upp. Eins er ekki óalgengt að undir áhrifum áfengis eigi dramatík í tengslum við ástamálin það til að ná hæstu hæðum. Skemmtanalýsingar af þessu tagi eru vissulega ekki einskorðaðar við unglinga. Fullorðnir eru oft ekki barnanna bestir í þessum efnum.

Í unglingasamkvæmum þar sem krakkarnir eru að drekka áfengi tekur sá sem ekki neytir áfengis gjarnan að sér að hjálpa félögum sínum sem drukkið hafa meira en góðu hófi gegnir. Hjálpin felst í því að styðja og hugga grátandi vini, róa þá sem eru æstir eða reiðir, nú eða halda hári frá andliti þeirra sem þurfa að kasta upp.

Í umræðu um málefni unglinga og forvarnir er of sjaldan minnst á þennan hóp. Um er að ræða einstaklinga sem hafa meðvitað ákveðið að áfengi skuli ekki vera hluti af þeirra lífsstíl og gildir þá einu hvort það sé núna, í framtíðinni eða þegar þeir verða löggildir áfengiskaupendur.

Það er mikið álag að vera í sporum þeirra unglinga sem vilja standast hópþrýsting en óttast á sama tíma að vera hafnað af hópnum ef ákvörðun þeirra um áfengislaust líferni gengur gegn meirihlutanum. Mæti þeir ekki í partý óttast þeir að félagsleg staða þeirra kunni að komast í uppnám. Þeir vilja vera með en upplifa sig, eðli málsins samkvæmt, vera utanveltu. Að taka að sér hlutverk huggarans, sáttasemjarans og aðstoðarmanns er því skárri kostur en að sitja heima og finnast maður einmana og vinalaus.

Huga þarf betur að þessum hópi því margir eiga í baráttu við sjálfan sig og umhverfið. Samfélagið getur stutt betur við bakið á þeim til dæmis með því að minnast oftar á þau í almennri umræðu, hvetja þau til að halda ótrauð sínu striki og einnig að hvetja aðra unglinga til að taka þau sér til fyrirmyndar.

 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×