Skoðun

Afturkippur í jafnrétti

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Staðan er þessi: um 540 opinberum starfsmönnum hefur verið sagt upp, þar af voru 470 konur en 70 karlar, fæðingarorlofsgreiðslur hafa verið stórlega lækkaðar, börn komast seinna inn á leikskóla og launamunur kynjanna hefur lítið minnkað.

Svona er nú jafnvægið hér á Íslandi rúmum tveimur árum eftir efnahagshrunið. Eflaust má finna á þessu margar skýringar, en þær bæta ekki ástandið. Eftir situr að menn sofnuðu á verðinum. Sjónarmiðin um að jafnréttiskrafan ætti ekki rétt á sér í kreppu, urðu ofan á. Illu heilli.

Mistök ráðamanna ættu að vera hverjum manni augljós. Stefna vinstri stjórnarinnar var kynjuð hagstjórn. Enginn vinnur meira gegn þeirri stefnu en stjórnin sjálf. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar til eflingar atvinnu er hrópandi og það litla sem gert er miðar allt að því að styrkja hinar svonefndu “karlastéttir” í stað þess að horfa til beggja kynja. Hugsunarleysi eða ekki, slæmt er það.

Þrátt fyrir að ríkisstjórnin sé almennt miklu hrifnari af skattahækkunum en niðurskurði, voru greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi eitt það fyrsta sem tekið var af fólki og fjölskyldum – og það ekki bara einu sinni heldur í þrígang. Þar með var allt bit dregið úr einu helsta jafnréttistæki landsmanna þótt vissulega séu einhverjir sem gráti ekki það bitleysi. Við því mátti búast en undanlátssemi gagnvart slíkum draugum fortíðar er ekki í boði.

Sannarlega mætti nefna fleiri sláandi dæmi þar sem ábyrgðin úr ranni hins opinbera er augljós.

Við eigum alltaf að hafa jafnrétti í huga, heima hjá okkur, á vinnustaðnum og í daglegu lífi. Hvar sem er, hvenær sem er. Jafnréttismál eru samfélagsmál. Munum að mismununin, meðvituð sem ómeðvituð, hefst strax í æsku. Munum að mælingar á mismunun birtist víða hvort sem er í skóla, tómstundum eða vinnustöðum. Og hættum aldrei að tala um það. Sama hvað Icesave eða stjórnlagamál taka mikið pláss í umræðunni.

En þótt ráðamenn sofni á verðinum og gleymi því að jafnrétti á ávallt að vera til staðar, en ekki bara í jafnri skiptingu ráðherrasæta á milli kynjanna, skulum við hin muna eftir þessu mikilvæga máli, alltaf og alls staðar. Nú þarf að standa vaktina.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×