Man City og Inter Milan byrjuð að tala saman um Tevez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2012 10:15 Carlos Tevez. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það stefnir í baráttu á milli Mílanó-félaganna um Carlos Tevez því nú hefur Inter Milan blandað sér inn í málið fyrir alvöru. AC Milan hefur undanfarnar vikur reynt að fá Argentínumanninn að láni en nú hafa Inter-menn hafið viðræður við Manchester City um kaup á Tevez. Viðræður Manchester City og AC Milan hafa ekki gengið vel og það er nokkuð ljóst að það mun ekki ganga upp hjá AC Milan að fá Tevez á láni. City-menn ætla að selja leikmanninn og það kemur ekkert annað til greina. "Við erum ekki að þessu í einhverju gríni. Við teljum að þetta sé góður kostur fyrir okkur. Við ætlum að fræðast um hver staðan sé og hvort að það skapast tækifæri fyrir okkur að fá hann. Það eru ennþá þrjár vikur eftir og þetta snýst ekki um bjartsýni heldur um að sjá hver staðan sé í raun og veru," sagði Massimo Moratti forseti Inter. Carlos Tevez hefur ekki spilað með Manchester City síðan á móti Birmingham 21. september síðastliðinn eftir að hann neitaði að hita upp fyrir Meistaradeildarleik á móti Bayern München. Inter er í 5. sæti ítölsku deildarinnar, tíu stigum á eftir toppliði AC Milan. Liðin mætast um næstu helgi og Tevez málið mun örugglega ýta undir ríginn á milli félaganna fyrir þann leik.
Ítalski boltinn Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Enski boltinn Fleiri fréttir Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Sjá meira