Romney vann stórisgur í Púertó Ríkó 20. mars 2012 01:00 kosningabaráttan Mitt og Ann Romney hafa eytt síðustu dögum í Illinois í kosningabaráttu, enda eru forkosningar þar í dag. Þau báru fram þessa pönnuköku á veitingastað í Springfield í gær. fréttablaðið/ap
Mitt Romney vann stórsigur í forkosningum Repúblikanaflokksins í Púertó Ríkó á sunnudag. Romney hlaut yfir áttatíu prósent atkvæða og alla tuttugu kjörmennina. Romney hefur nú fengið 521 kjörmenn á meðan helsti keppinautur hans, Rick Santorum, hefur fengið 253. Newt Gingrich er með 136 kjörmenn og Ron Paul 50. 1.144 kjörmenn þarf til að hljóta útnefningu Repúblikanaflokksins á ársfundi hans í ágúst. Eiginkona Romney, Ann Romney, hvatti repúblikana í gær til þess að fylkja sér um hann. Hún sagði tímabært að þeir stæðu saman og styddu einn frambjóðanda svo hægt væri að beina sjónum að því að sigra demókratann Barack Obama í forsetakosningunum. Santorum segist hins vegar langt frá því að hætta baráttunni. Hann sagði það blessun fyrir sig að fólk vanmeti hann iðulega. Forkosningar verða í Illinois í dag og Louisiana á laugardag. Enn á eftir að kjósa í um helmingi ríkjanna. Obama forseti hefur hert á fjáröflun sinni fyrir kosningarnar undanfarið. Hann safnaði 45 milljónum dollara í febrúar og hefur safnað um 300 milljónum samtals fyrir kosningarnar. - þeb
Fréttir Mest lesið Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Erlent Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Innlent Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Innlent Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Innlent Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Innlent Fleiri fréttir Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Sjá meira