
Endurreisn efnahagslífsins er að heppnast
Óumflýjanleg útgjaldaaukning stafaði af stórauknu atvinnuleysi, vaxtagreiðslum vegna skulda sem hlóðust á ríkissjóð, beinum kostnaði við endurreisn efnahagslífsins og nauðsynlegum ráðstöfunum eins og stórhækkun vaxtabóta og vinnumarkaðs- og menntaaðgerðum tengdum auknu atvinnuleysi. Þá hefur rannsókn þessara atburða, réttarfarshliðin, samningagerð, málsvörn og hagsmunagæsla ríkisins kostað ófáa viðbótarmilljarða. Sem dæmi um stórar tölur má nefna að gjaldþrot Seðlabanka Íslands nam hátt í 200 mia. kr., kostnaður vegna atvinnuleysis er yfir 100 mia. kr. frá hruni og eiginfjárframlög til banka og sparisjóða, Íbúðarlánasjóðs og Byggðastofnunar nálgast 200 milljarða. Staðan var þannig í lok árs 2008 og út árið 2009 að raunveruleg hætta á þjóðargjaldþroti vofði yfir Íslandi, þ.e. að ríkissjóður myndi fyrr eða síðar ekki ná að standa í skilum með skuldbindingar sínar sem hefði dýpkað kreppuna enn frekar og þýtt meiriháttar bráðnun íslensks efnahagslífs. Í reynd var að dómi undirritaðs ekki fullljóst fyrr en í apríllok 2010 að þeirri hættu hefði verið bægt frá.
Sem betur fer tókst að afstýra öllu slíku líkt og nýbirtur ríkisreikningur fyrir árið 2011 sýnir. Það kemur úr hörðustu átt að heyra sjálfstæðismenn gera lítið úr þeim árangri sem náðst hefur í ríkisfjármálum. Síðasta heila árið sem þeir báru ábyrgð á rekstri ríkisins, þ.e. 2008, var hallinn 216 milljarðar á verðlagi þess árs. Það gera 280 milljarða framreiknað með vísitölu neysluverðs til júní 2012. Vissulega er sárt að enn eru að falla til einskiptis „hrunreikningar" sem nær alfarið skýra frávik í ríkisreikningi fyrir árið 2011 frá áætlun fjáraukalaga. Slíkum liðum fer hins vegar ört fækkandi og upphæðirnar lækka eftir því sem árin líða frá hruni. Hið ánægjulega er að til framtíðar litið horfir rekstur ríkissjóðs mun betur og markmiðið um heildarjöfnuð 2014 er fyllilega raunhæft. Í nýbirtum ríkisreikningi fyrir árið 2011 má sjá að sjóðstreymið frá rekstri ríkisins hefur batnað umtalsvert frá árunum á undan. Það er góður mælikvarði á þann árangur sem er að nást í raunverulegum eða segjum undirliggjandi rekstri ríkisins. Frumjöfnuður er nú kominn í jafnvægi sem gerir Ísland eitt af fáum ríkjum Evrópu þar sem slíkt er raunin. Viðsnúningur á frumjöfnuði ríkissjóðs frá árinu 2008 hefur vakið athygli erlendra greiningaraðila og fræðimanna og er oft vísað til hans þegar árangur Íslands í glímunni við kreppuna er kallaður athyglisverður, jafnvel undraverður. Í þessu samhengi má einnig benda á nokkuð kröfuharða dómara, þ.e. erlenda fjárfesta. Þeir hafa greinilega trú á Íslandi og okkar stefnu eins og sýndi sig í tveimur vel heppnuðum skuldabréfaútboðum ríkisins á erlendum markaði á árunum 2011 og 2012. Í útboðunum var veruleg umframeftirspurn, sem sagt fleiri voru tilbúnir til að kaupa meira en fengu. Það er ekki svo slæmur vitnisburður fyrir Ísland 2-3 árum eftir hrun.
Lykillinn að árangri – blönduð leiðÞegar ríkisstjórnin lagði grunn að aðgerðum sínum í ríkisfjármálum á fyrrihluta árs 2009 var byggt á tilteknum hornsteinum:
A) Þegar yrði hafist handa en ekki beðið, sbr. umfangsmiklar aðgerðir strax á miðju ári 2009.
B) Farin yrði blönduð leið tekjuöflunar og sparnaðar í útgjöldum.
C) Velferðarkerfið yrði varið fyrir niðurskurði eins og kostur væri og tekjulægstu hópum samfélagsins hlíft, ekki síst með skattkerfisbreytingum sem lögðu byrðarnar á hina tekjuhærri og efnameiri. Þessi blandaða leið hefur reynst farsæl enda hefur það sýnt sig í glímu annarra ríkja við erfiðleika í ríkisfjármálum að sé gengið of hart gegn velferðarkerfinu eða tekjulágum hópum getur það aukið á vandann í stað þess að leysa hann. Okkar útfærsla er því ekki aðeins hin eina rétta félagslega, heldur sýnir sig í að vera efnahagslega vel heppnuð.
Veruleikinn sigrar niðurrifstaliðAllt yfirstandandi kjörtímabil hefur stjórnarandstaðan, með sorglega fáum en virðingarverðum undantekningum, talað niður eða gert lítið úr hverju skrefi sem Ísland hefur færst frá hruninu. Eru heimsendaspárnar orðnar fleiri en tölu verður á komið. Viðbrögðin við nýbirtum ríkisreikningi eru af sama sauðarhúsi. Í stað þess að fagna áframhaldandi bata er hann talaður niður. Formaður Sjálfstæðisflokksins boðaði við það tækifæri stórkostlegan viðbótar niðurskurð, þar á meðal í velferðarmálum, því engu eigi að hlífa komist flokkurinn til valda. E.t.v. er Bjarni Benediktsson að sækja í reynslubrunn systurflokks síns á Bretlandi, breska Íhaldsflokksins. Þar í landi virðast harkalegar niðurskurðaraðgerðir, ekki síst á velferðahliðinni, vera nánast að stöðva breskt efnahagslíf. Hagvöxtur mælist þar vart lengur og útlitið stöðugt að versna. Hitt er ágætt að fá þessa forkynningu á væntanlegri kosningastefnuskrá Sjálfstæðisflokksins.
Á Íslandi er annað uppi en í Bretlandi. Líkt og flestir hagvísar hafa sýnt síðustu ársfjórðunga er nú aukinn kraftur í efnahagsumhverfinu á Íslandi. Atvinnuleysi hefur minnkað hratt að undanförnu með auknum umsvifum. Hagvöxtur var 3,1% á árinu 2011 og horfur eru góðar fyrir yfirstandandi ár og þau næstu að því tilskyldu að heimsbúskapurinn haldist á hjörunum. Þetta þýðir þó ekki að hægt sé að slaka á. Vinna verður að fullu bug á hallarekstri ríkisins eins og efnahagsáætlunin gerir ráð fyrir. Á heildina litið er útlitið bærilegt og það landris í efnahagsmálum sem spáð var síðsumars 2010 er þegar staðreynd. Nú er komið á daginn að það var einmitt þá, á síðari hluta ársins 2010, sem hagkerfið sneri við úr samdrætti í vöxt. Þar reyndist undirritaður sannspár en ekki hrakspámenn stjórnarandstöðunnar. Á meðfylgjandi mynd kemur fram að staðan hvað varðar sjóðsstreymi ríkissjóðs batnaði um rúma 90 milljarða króna milli áranna 2009 og 2011. Vísbendingar úr rekstri ríkissjóðs á fyrri helmingi yfirstandandi árs benda eindregið til áframhaldandi bata. Við erum á réttri leið og það er ekki síst markverður árangur í glímunni við ríkisfjármálin sem varðar veginn.
Skoðun

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar