Skoðun

Friðsemd í náttúru Íslands

Gunnar Hersveinn skrifar
Starf friðsemdar í náttúru Íslands snýst oft um að bjarga verðmætum undan eyðileggingarmætti græðgi og heimsku. Hún þarf sífellt að forða gersemum frá eyðileggingu, hindra, stöðva eða afla fylgis, afhjúpa og opna augu annarra. Tími og orka friðsemdar fer í björgunarstarf en miklu meira býr í henni – aðeins ef fólk gæfi henni tækifæri til að blómstra.

Friðsemdin beitir ekki aðferðum sundrungar. Hún græðir og byggir upp. Hún getur verið kröftug sem dínamít en hún kúgar aldrei. Hún getur verið beittur penni og hvöss tunga en þrátt fyrir það eru sérkenni hennar vinsemd og sátt. Hún nemur ekki staðar, hún heldur áfram og einkenni hennar eru víðsýni og innsýn í betri framtíð.

Hún getur staðið fyrir kröftugum mótmælum og einnig byltingum. Hún getur bundið sig með keðjum á stórvaxnar vinnuvélar valdsins. Hún er fangelsuð víða um heim af hræddum kúgurum í nafni lyginnar. Hún hrópar og hún skammar – en hún er ekki flagð undir fölsku skinni eins og mótherji hennar.

Friðsemd er höfuðdyggð náttúruverndara. Framtíðarvelferð lands og þjóðar, vitundin um næstu kynslóð, vistkerfið knýr hana áfram. Þaðan fær hún orkuna.

Friðsemdin er sjaldan í fréttum því aðferð hennar felur ekki í sér ógn eða sigur, ekki kænsku eða dauða. Samt er hún byltingarkennd! Friðsemdin bjó í Guðmundi Páli Ólafssyni einum öflugasta liðsmanni hálendisins, hann var perlusteinn í náttúru Íslands. Tökum hann okkur til fyrirmyndar!

Hann skrifaði: „Náttúruvernd er mannvernd. Hún snýst um verndun náttúruarfleifðar og hins sögulega arfs. Um leið er hún heilsteypt sýn á eilífðarnýtingu landsins gæða og eina framtíðarvon mannsins." (Grát fóstra mín, 1997). Lesum bækurnar hans, þar finnst mannbætandi náttúrusýn.

Við erum ekki aðeins íbúar í borg, bæjum og sveitarfélögum. Við erum einnig staðurinn, landslagið, umhverfið og náttúran öll. Að selja hana undir eituriðjur eins og GPÓ kallaði þær, er ekki aðeins stundargróði heimskunnar heldur einnig langtímatap þjóðar og stórtap sérhvers manns.

GPÓ var maður friðsemdar sem sparaði ekki stóru orðin. Tökum hann okkur til fyrirmyndar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×