Tugþúsundir andæfa yfirgangi forsetans [email protected] skrifar 24. nóvember 2012 00:30 Átök í Kaíró Mótmælendur bera félaga sinn, sem særðist í átökum, til að koma honum undir læknishendur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tugir manna slösuðust í átökum milli stuðningsmanna og andstæðinga Mohammeds Morsi Egyptalandsforseta, sem brutust út í Kaíró í gær út af stjórnarskrárbreytingum forsetans. Morsi kynnti stjórnarskrárbreytingarnar á fimmtudaginn, en með þeim tekur hann sér einhliða nánast alræðisvald í landinu. Tugir þúsunda manna komu saman í gær á Tahrir-torgi í Kaíró til að mótmæla þessu og krefjast þess að lýðræði yrði í hávegum haft. Kveikt var í skrifstofum Bræðralags múslíma í nokkrum helstu borgum landsins, en stjórnmálaflokkur Morsis er afsprengi þeirra samtaka. Stuðningsmenn Morsis segja stjórnarskrárbreytingarnar rökrétt skref til þess að tryggja að sá árangur, sem náðist þegar Hosni Mubarak var steypt af stóli, verði ekki að engu. Þetta sé eina leiðin til að koma í veg fyrir að ekkert verði úr þeim breytingum á stjórnskipan landsins, sem unnið hefur verið að síðustu mánuði. Fyrr á þessu ári leystu dómstólar upp bæði nýkjörið þjóðþing og stjórnlagaþing landsins. Í byrjun næsta mánaðar hugðist hæstiréttur Egyptalands síðan kveða upp úrskurð um það hvort efri deild þingsins hefði verið rétt kjörin. Sjálfur hélt Morsi ræðu í gær fyrir þúsundir stuðningsmanna sinna þar sem hann sagði þessar ráðstafanir nauðsynlegar til að stöðva þau „meindýr" sem hann segir reyna að koma í veg fyrir framfarir í landinu. Morsi segir að breytingarnar eigi einungis að vera tímabundnar. Þær falli sjálfkrafa úr gildi þegar ný stjórnarskrá tekur gildi í landinu.
Fréttir Mest lesið Fordæmalaus náðun Bidens Erlent Hyggjast fljúga þotunni yfir Reykjavík í hádeginu Innlent „Fullt af augljósum árekstrum þarna“ Innlent Getur ekki hugsað til þess að þurfa að loka aftur eftir tvo mánuði Innlent Hafnað í fyrsta sinn í tuttugu ár Innlent Vatnsleki í Garðheimum Innlent Gekk betur en óttast var Innlent Lifir grenitréð í Ölfusá af krapastífluna? Innlent „Þessi aðgerð lukkaðist vel“ Innlent Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2024 Innlent Fleiri fréttir Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liða Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Sjá meira